Innlent

Forseti Alþingis fundar með kollegum sínum í Lettlandi

Þingforsetarnir á fundinum.
Þingforsetarnir á fundinum.
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, hefur síðustu daga sótt fund forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem haldinn er í Jurmala í Lettlandi en fundurinn hófst þann 26. ágúst og honum lýkur í dag. Til umræðu er nánara samstarf Norðurlandaráðs og Eystrasaltsþingsins og stöðu þjóðþinganna gagnvart Evrópusambandinu.

„Með forseta í för eru Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, og Jörundur Kristjánsson, alþjóðaritari á skrifstofu forseta Alþingis," segir í tilkynningu frá Alþingi. „Í gær ræddu þingforsetar um nánara samstarf Norðurlandaráðs og Eystrasaltsþingsins og stöðu þjóðþinganna gagnvart Evrópusambandinu. Kynnti Per Westerberg, forseti sænska Ríkisdagsins, í því samhengi undirbúning Svía fyrir að taka við forsæti ráðherraráðs ESB. Þá ræddu forsetar stefnu ESB gagnvart Eystrasaltssvæðinu og stöðu Lissabonsáttmálans."

Á síðasta ári fóru þingforsetar til Georgíu „í þeim tilgangi að hvetja til áframhaldandi lýðræðisþróunar í landinu, áttu viðræður við stjórnvöld og stjórnarandstöðu og sendu frá sér yfirlýsingu um ástandið í Georgíu og á Kákasussvæðinu," segir einnig. Ástandið í Georgíu bar því eðlilega á góma á fundinum. „Hörmuðu þingforsetar átökin og lögðu áherslu á að virða bæri alþjóðlega viðurkennd landamæri og fullveldi Georgíu. Forsetar þjóðþinganna ítrekuðu að virða bæri ákvæði friðarsamkomulagsins þegar í stað og veita óhindraðan aðgang fyrir mannúðarhjálp og endurbyggingarstarf. Þá fordæmdu þingforsetar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja ákvörðun Rússa um að viðurkenna sjálfstæði sjálfsstjórnarhéraðanna Abkasíu og Suður-Ossetíu."

Síðasta fundardaginn eru orkumál og loftlagsbreytingar til umfjöllunar. „Kynnti Thor Pedersen, forseti danska þingsins, loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin verður í Kaupmannahöfn á næsta ári, en þar verður reynt að ná samkomulagi sem leysa mun af hólmi Kyoto samkomulagið. Þá ræddu þingforsetar sameiginleg verkefni við að styðja lýðræðisþróun og næsta fund sem haldinn verður í Noregi á næsta ári."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×