Forseti Alþingis fundar með kollegum sínum í Lettlandi 28. ágúst 2008 12:09 Þingforsetarnir á fundinum.
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, hefur síðustu daga sótt fund forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem haldinn er í Jurmala í Lettlandi en fundurinn hófst þann 26. ágúst og honum lýkur í dag. Til umræðu er nánara samstarf Norðurlandaráðs og Eystrasaltsþingsins og stöðu þjóðþinganna gagnvart Evrópusambandinu. „Með forseta í för eru Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, og Jörundur Kristjánsson, alþjóðaritari á skrifstofu forseta Alþingis," segir í tilkynningu frá Alþingi. „Í gær ræddu þingforsetar um nánara samstarf Norðurlandaráðs og Eystrasaltsþingsins og stöðu þjóðþinganna gagnvart Evrópusambandinu. Kynnti Per Westerberg, forseti sænska Ríkisdagsins, í því samhengi undirbúning Svía fyrir að taka við forsæti ráðherraráðs ESB. Þá ræddu forsetar stefnu ESB gagnvart Eystrasaltssvæðinu og stöðu Lissabonsáttmálans." Á síðasta ári fóru þingforsetar til Georgíu „í þeim tilgangi að hvetja til áframhaldandi lýðræðisþróunar í landinu, áttu viðræður við stjórnvöld og stjórnarandstöðu og sendu frá sér yfirlýsingu um ástandið í Georgíu og á Kákasussvæðinu," segir einnig. Ástandið í Georgíu bar því eðlilega á góma á fundinum. „Hörmuðu þingforsetar átökin og lögðu áherslu á að virða bæri alþjóðlega viðurkennd landamæri og fullveldi Georgíu. Forsetar þjóðþinganna ítrekuðu að virða bæri ákvæði friðarsamkomulagsins þegar í stað og veita óhindraðan aðgang fyrir mannúðarhjálp og endurbyggingarstarf. Þá fordæmdu þingforsetar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja ákvörðun Rússa um að viðurkenna sjálfstæði sjálfsstjórnarhéraðanna Abkasíu og Suður-Ossetíu." Síðasta fundardaginn eru orkumál og loftlagsbreytingar til umfjöllunar. „Kynnti Thor Pedersen, forseti danska þingsins, loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin verður í Kaupmannahöfn á næsta ári, en þar verður reynt að ná samkomulagi sem leysa mun af hólmi Kyoto samkomulagið. Þá ræddu þingforsetar sameiginleg verkefni við að styðja lýðræðisþróun og næsta fund sem haldinn verður í Noregi á næsta ári."
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira