Innlent

Mönnunum var sagt að fara ekki í rörið

MYND/Einar
MYND/Einar

Mönnunum tveimur sem létust í aðveituröri í Hellisheiðarvirkjun í gærkvöldi, hafði verið sagt að fara ekki inn í rörið. Þeir fundust látnir um metra frá opinu sem þeir gerðu.

Vinnudegi mannana, sem voru Rúmenar, var að ljúka um sjö leytið í gærkvöldi þegar samlandi þeirra og verkstjóri fól þeim það verkefni að gera gat á eitt af aðveiturörum virkjunarinnar og sagði þeim jafnframt að fara ekki inn í rörið. En til stóð að gera tvö göt á rörið til að lofta um það, þannig að vinna gæti hafist inni í því í dag við að setja þar svo kallaða öldubrjóta. Verkstjórinn brá sér frá en þegar hann kom til baka fann hann mennina báða liggjandi um metra frá opinu á rörinu. Hann togaði mennina út og hóf þegar lífgunartilraunir sem báru ekki árangur. Kallað var á lögreglu klukkan rúmlega sjö í gærkvöldi.

Mennirnir höfðu báðir unnið hjá verktakafyrirtækinu Altaki í um ár sem sér um járnsmíði við virkjunina. Annar þeirra var 46 ára og lætur eftir sig eiginkonu og eitt barn, en hinn var þrjátíu og þriggja ára og lætur eftir sig eiginkonu og tvö ung börn.

Frétt Stöðvar 2 um málið má sjá hér.




Tengdar fréttir

Alvarlegt slys í Hellisheiðarvirkjun

Alvarlegt slys varð í Hellisheiðarvirkjun fyrir stundu. Allt tiltækt lið lögreglu- og sjúkramanna á Selfossi var sent á staðinn ásamt liðsauka úr Reykjavík. Ekki er vitað hversu margir eru slasaðir en nokkrir munu vera alvarlega slasaðir og þar af einn lífshættulega. Jarðskjálfti að stærðinni 2,5 varð klukkan rúmlega hálf sjö í kvöld á svæðinu. Ekki er vitað hvort að sjálftin tengist sslysinu. Nánari upplýsingar fengust ekki að svo stöddu.

Unnið að rannsókn í Hellisheiðarvirkjun

Ekkert liggur enn fyrir um orsakir banaslyssins í Hellisheiðarvirkjun í gærkvöldi, þar sem tveir rúmenskir starfsmenn undirverktaka létust þegar þeir voru við vinnu inni í stóru vatnsröri. Starfsmenn Vinnueftirlitsins og lögreglumenn unnu að rannsókn fram á nótt, en lík Rúmenanna voru flutt til Reykjavíkur þar sem þau verða væntanlega krufin.

Banaslys í Hellisheiðarvirkjun - Tveir látnir

Lögregla og sjúkralið frá Selfossi og Reykjavík voru kölluð að Hellisheiðarvirkjun upp úr kl. 19:00 í kvöld vegna alvarlegs vinnuslyss. Lögreglumenn eru ennþá við vinnu á vettvangi en tveir erlendir starfsmenn verktakafyrirtækis létust í slysinu.

Höfðu ekki unnið lengi á Íslandi

Tveir menn létust vegna súrefnisskorts þegar þeir fóru inn í veiturör við Hellisheiðarvirkjun í gærkvöldi. Rörið var tæmt af vatni og gufu á þriðjudag og viðhaldsvinna átti að hefjast við það í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×