Íslensk stjórnvöld hefðu getað komið í veg fyrir milliríkjadeilu við Breta 26. október 2008 18:30
Daginn áður en neyðarlög voru sett á bankana buðust bresk yfirvöld til að taka alla Icesave reikninga undir sína ábyrgð á fimm dögum, gegn því að Seðlabankinn lánaði Landsbankanum 200 milljónir punda í tryggingu. Þetta kemur fram í viðtali við Björgólf Thor Björgólfsson í Kompási annað kvöld. Hann fullyrðir að ef þessu góða boði hefði verið tekið stæði landið ekki í harðvítugri milliríkjadeilu og með laskaða ímynd. Það að Seðlabankinn hafi hafnað því að gangast í þessa ábyrgð mánudaginn 6. október skýri harkaleg viðbrögð bresku fjármála- og forsætisráðherranna. Icesave reikningar Landsbankans hafa reynst Íslendingum dýrir, sett bankann í hóp hryðjuverkaríkja og samtaka og stefnt öllum íslenskum hagsmunum erlendis í uppnám. Í viðtali við Björgólf Thor Björgólfsson í Kompási annað kvöld fullyrðir hann að ríkisstjórnin og Seðlabankinn hafi klúðrað tækifæri til að afstýra þessu með því að koma Icesave reikningunum í breska ábyrgð. Mánuðum saman hafi breska fjármálaeftirlitið sýnt þvergirðingshátt og neitað að axla ábyrgð á þessum reikningum en sunnudaginn örlagaríka, 5. október, daginn áður en neyðarlögin voru sett var komið allt annað hljóð í strokkinn. Björgólfur fullyrðir að breska ríkið hafi sagt að það væri komin ný stefna og að það taki fimm daga að koma Icesave í breska lögsögu. Það hafi verið háð því að Landsbankinn myndi leggja inn 200 milljón pund sem tryggingu. Landsbankinn hafi beðið um slíka fyrirgreiðslu frá Seðlabankanum á sunnudeginum í góðri trú um að menn myndu fá það. Síðla um daginn hafi komið svar frá Landsbankanum um að engin fyrirgreiðsla fengist. Björgólfur segir að ef unnið hefði verið að þessu væri Icesave komið í breska lögsögu og millríkjadeilan væri ekki í gangi. Björgólfur segir að Landsbankinn hafi boðið fimmfalt veð fyrir láninu hjá Seðlabankanum. Daginn eftir að Seðlabankinn hafnaði láni til Landsbankans og bankinn var tekinn með neyðarlögum hringdi Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta í Árna Mathiesen. Björgólfur Thor telur að í samtalinu hafi Darling, furðu lostinn, vísað í að Landsbankinn hafi ekki fengið fyrirgreiðslu deginum áður.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Sjá meira