Innlent

Gestir Bíladaga minntir á að fara varlega

Bílaklúbbur Akureyrar ásamt Akureyrarbæ og stuðningsaðilum sínum hefur nú komið upp tveimur gámum við Glerárgötu og Drottningarbraut til að minna ökumenn og þátttakendur í Bíladögum 2008 á að fara nú varlega í umferðinni.

„Bíladagar á Akureyri hafa þróast undanfarin ár í að verða langstærsta mótorsport hátíð landsins og búast skipuleggjendur hátíðarinnar við 10-12 þús manns í bæinn," segir í tilkynningu frá skipuleggjendum. „Bíladagar fara fram dagana 13-17 júní og eru skipulagðir viðburðir alla daga."

Þá kemur fram að AIM, eða Akureyri International Musicfestival muni einnig fara fram sömu daga og því ljóst að nóg verði um að vera á Akureyri þessa daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×