Innlent

Steingrímur Ari skipaður forstjóri Sjúkratryggingastofnunar

Steingrímur Ari Arason.
Steingrímur Ari Arason.

Steingrímur Ari Arason, framkvæmdstjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna, hefur verið skipaður forstjóra Sjúkratryggingastofnunar til næstu fimm ára. Hann tekur við embættinu 1. nóvember.

Steingrímur Ari Arason hefur verið framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna frá árinu 1999, en hann er MA í hagfræði frá háskólanum í Uppsala.

Steingrímur Ari var einn þriggja einstaklinga sem stjórn Sjúkratrygginastofnunar gerði tillögu um að skipaður yrði forstjóri stofnunarinnar.

Þrjátíu og þrír sóttu um starf forstjóra Sjúkratryggingastofnunar. Sex tóku umsóknir sínar aftur. Sautján karlar og tíu konur sóttust eftir starfinu. Forstjórastaðan var auglýst laus til umsóknar í vor og sumar.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×