Innlent

Ólafur Ragnar: Höldum þjóðhátíð

Forseti Íslands trúir ekki öðru en að þjóðin haldi þjóðhátíð um helgina í tilefni af velgengni íslenska handboltaliðsins og fullyrt hafi verið við sig að þetta muni vekja mesta athygli á Ólympíuleikunum, fyrir utan afrek einstakra manna. Forsætisráðherra segir að vel verði tekið á móti liðinu þegar það kemur heim. Haukur Holm ræddi við menn í sigurvímu í dag.

Spennan í leik Íslendinga og Spánverja í dag var gríðarleg og þegar leik lauk með sannfærandi 6 marka sigri Íslendinga flæddu tilfinningarnar af sama krafti og einkenndi leikmenn meðan á leik stóð. Íslenska liðið er með sigrinum búið að tryggja sér silfurverðlaun á Ólympíuleikunum og gullverðlaunin eru innan seilingar, en baráttan um þau verður við Frakka á sunnudagsmorgun. Íslenska liðið fékk góðan stuðning Íslendinga á áhorfendapöllunum og meðal þeirra var forseti Íslands sem átti erfitt með að lýsa líðan sinni í leikslok.

Ólafur Ragnar segir ýmsa útlendinga sem rætt hafi við sig líkt árangri

Forsætisráðherra lýðveldisins fylgdist með leiknum hérna heima. Geir er bjartsýnn fyrir úrslitaleikinn, en segir menn ekki mega vera vanþakkláta fyrir að vinna bara silfurverðlaun á Ólympíuleikum. Hann segir að vel verði tekið á móti liðinu þegar það kemur heim.

Ólafur Rafnsson, forseti Íþróttasambands Íslands, fylgdist spenntur með í Peking og segir árangurinn í dag hápunkt íslenskrar íþróttasögu.

Guðmundur Ingvarsson, formaður HSÍ, var asæll þegar Stöð 2 náði tali af honum í Peking í dag og vonast til að árangurinn verði til að bæta erfiðan fjárhag sambandsins.








Tengdar fréttir

Færeyingar halda líka með strákunum okkar

50 þúsund Færeyingar munu fylgjast með úrslitaleik Íslendinga og Frakka á sunnudaginn kemur. Þetta segir Georg Eystan sem sendi þetta fallega skeyti til Íslands eftir sigur okkur á Spánverkum.

Myndir úr leik Íslands og Spánar

Sem fyrr var Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari viðstaddur er Ísland tryggði sér í dag sæti í úrslitaleiknum á Ólympíuleikunum í Peking.

Ísland er stórasta land í heimi

"Ísland er ekki lítið land. Ísland er stórasta land í heimi," sagði Dorrit Moussaieff, forsetafrú, í beinni útsendingu Ríkissjónvarpsins eftir að Ísland vann frækinn sigur á Spánverjum í dag.

Silfrið tryggt - gullið bíður

Ísland er komið í úrslitaleikinn í keppni í handbolta karla á Ólympíuleikunum í Peking. Ísland lagði Spán í úrslitunum, 36-30.

Alfreð: Nú þarf þjóðin að taka við sér

„Ég vona að sama hvernig úrslitaleikurinn fer að fólk kveiki á því að það þarf að gera eitthvað fyrir handboltann á Íslandi. Þetta er hluti af okkar menningu og við erum að setja milljarða í aðra menningu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×