Yfirlýsing frá Kristni Hrafnssyni fréttamanni Kompáss 7. maí 2008 13:50 Kristinn Hrafnsson.
Vísi hefur borist yfirlýsing frá Kristni Hrafnssyni fréttamanni Kompáss.„Starfsmaður almannatengslafyrirtækisins Kynning og markaður (KOM) hafði samband við Kompás í gær og sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu sem sögð er í nafni Haraldar Johannessen, Ríkislögreglustjóra og Valtýs Sigurðssonar, ríkissaksóknara. Þar er því hafnað að embætti Ríkislögreglustjórans hafi, gegn betri vitund, tjáð embætti ríkissaksóknara að engin gögn fyndust í Þjóðskjalasafni sem lúta að rannsókn á láti tveggja manna árið 1985. Fullyrðing um að gögn finnist ekki er sett fram í bréfi til saksóknarans 22. ágúst s.l. Í yfirlýsingunni segir að Þjóðskjalasafn hafi í svari við fyrirspurn "...upplýst að gögn málsins hefðu ekki fundist við fyrstu athugun". Svar Þjóðskjalasafns er sagt dagsett 25. maí 2007. Þetta rímar illa við svar Þjóðskjalavarðar við fyrirspurn Kompáss þar sem segir að það hafi verið brugðist við eftirgrennslan Ríkislögreglusrjórans frá 11. maí í fyrra með því að staðsetja rannsóknargögn málsins. Síðan segir: "Í kjölfarið var fulltrúi embættis Ríkislögreglustjórans látinn vita að umrædd málskjöl væru tilbúin til afgreiðslu á skrifstofu Þjóðskjalasafns. Þegar málskjalanna hafði ekki verið vitjað þann 6. júní sl., skv. bókun Þjóðskjalasafns, voru skjölin sett aftur á sinn stað í skjalasafni RLR." Það gefur auga leið að þetta misræmi kallar á skýringar. Það liggur fyrir að Ríkislögreglustjórinn lætur ríkissaksóknara ekki í hendur þau gögn sem eru í vörslu Þjóðskjalasafns. Ríkissaksóknari hafði þá til úrslausnar að leggja mat á synjun Ríkislögreglustjórans um aðgang ættingja hinna látnu að þessum gögnum. Það hlýtur því að teljast afar mikilvægt að ríkissaksóknari fái í hendur öll gögn málsins. Í yfirlýsingunni í gær frá KOM, sem sögð er frá embættunum tveimur, kemur fram að Ríkislögreglustjóri hafi leitað eftir þessum gögnum annars staðar eða hjá Landspítala, Háskólasjúkrahúsi en þar voru krufningsskýrslur og gögn frá RLR. Þessi skjöl hafi síðan verið send til ríkissaksóknara. Segir svo í yfirlýsingunni: "Þannig lágu gögn málsins fyrir hjá ríkissaksóknara þegar hann tók ákvörðun um að hafna aðgangi að umræddum gögnum." Það hefur ekki verið upplýst hvort gögnin á Landspítalanum og skjölin á Þjóðskjalasafni séu alfarið þau sömu. Ekki verður séð að Ríkislögreglustjóri og ríkissaksóknari hafi enn í dag kannað hvort í vorslu Þjóðskjalasafns séu að einhverju leyti önnur gögn en þau sem fundust í Landspítala. Benda má á að í gögnum Landspítala er ekki að finna skýrslu sem sá lögreglumaður sem fyrstur kom á vettvang segist, í samtali við Kompás, hafa ritað og hlýtur að teljast mikilvægt skjal fyrir ættingja hinna látnu. Ef það hefur enn ekki verið farið í gegnum skjöl Þjóðskjalasafns er sérstakt að ríkissaksóknari skuli kvitta uppá yfirlýsingu gærdagsins um að gögn málsins hafi legið fyrir þegar hann lagði mat á erindi ættingjanna. Voru það öll gögn málsins?" Undir yfirlýsinguna skrifar Kristinn Hrafnsson fréttamaður Kompáss.
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira