Innlent

Vilja að fólk „gefi sér tíma“

VÍS hefur efnt til þjóðarátaks gegn umferðarslysum undir yfirskriftinni „Gefðu þér tíma". Er þetta í sjöunda skiptið sem VÍS efnir til slíks átaks en í ár verður lögð áhersla á að brýna fyrir ökumönnum að þeir haldi ekki út í umferðina í tímaþröng og stressi heldur gefi sér rúman tíma þegar þeir skipuleggja ferðir sínar.

„Ökumenn sem eru í uppnámi hvort sem það er vegna þreytu, deilumála eða annarra persónulegra ástæðna eru líklegri til að lenda í óhöppum en aðrir," segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Meðal þeirra þátta sem trufla einbeitingu ökumanna og sem átakið beinist að í ár er notkun farsíma án handfrjáls búnaðar. „Það vekur athygli að á sama tíma og skráðir eru 308 þúsund farsímar hér á landi og bílaeign hefur aldrei verið meiri, þá voru á árunum 2001 til 2006 aðeins 625 ökumenn kærðir að jafnaði á ári fyrir að tala í síma undir stýri. Þrátt fyrir að kærum hafði fjölgað í 1338 árið 2006 er ljóst að það þarf að leggja mun meiri áherslu á að breyta þessu hegðunarmynstri ökumanna enda er það vaxandi áhættuþáttur í umferðinni hér á landi," segir Ragnheiður Davíðsdóttir forvarnarfulltrúi hjá VÍS.

VÍS lofar sláandi auglýsingaherferð í sumar og verða birtar útvarps-, sjónvarps- og blaðaauglýsingar. Átakið var kynnt á blaðamannafundi í Skautahöllinni í Laugardal í dag og til að minna á að akstur er dauðans alvara var sjö „grafreitum" komið fyrir utan við fundarstaðinn en það sem af er ári hafa sjö einstaklingar látið lífið í umferðaslysum hér á landi.

Hægt er að horfa á auglýsingu VÍS með þessari frétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×