Farþegar í innanlandsflugi yfir milljón 2007 Atli Steinn Guðmundsson skrifar 5. júní 2008 12:20
Fjöldi farþega í innanlandsflugi sem fóru um flugvelli sem reknir eru af Flugstoðum ohf. fór í fyrsta sinn yfir milljón árið 2007. Þarna er um að ræða alla flugvelli aðra en Keflavíkurflugvöll. Að sögn Hrafnhildar Brynju Stefánsdóttur, upplýsinga- og kynningarfulltrúa Flugstoða, verður þó að gera þann fyrirvara að allir farþegar eru taldir tvisvar sinnum, við brottför og komu á áfangastað. Því sé í raun um að ræða hálfa milljón farþega. Eins varð mikil aukning í millilandaflugi um íslenska flugstjórnarsvæðið en fjöldi flugvéla fór í fyrsta sinn yfir 100.000 á árinu. Af þeim voru um 71.000 vélar í yfirflugi og höfðu enga viðdvöl á flugvöllum landsins. Flugvöllurinn sennilega áfram í Vatnsmýri Á aðalfundi fyrirtækisins á þriðjudag voru þessar tölur kynntar ásamt öðrum auk þess sem nokkrar breytingar urðu á stjórn þess. Áfram sitja Ólafur Sveinsson stjórnarformaður, Hilmar Baldursson og Arnbjörg Sveinsdóttir en úr stjórn viku Gunnar Finnsson og Sæunn Stefánsdóttir. Í stað þeirra taka Ásgeir Magnússon og Margrét Kristmannsdóttir sæti í stjórn Flugstoða. Róbert Marshall, aðstoðarmaður samgönguráðherra, ávarpaði fundinn og ræddi meðal annars um þær breytingar sem áttu sér stað í ársbyrjun 2007 þegar rótgróinni ríkisstofnun, Flugmálastjórn Íslands, var skipt upp í annars vegar stjórnsýslu- og eftirlitsstofnun og hins vegar þjónustufyrirtæki. Þetta hafi verið í takt við þróunina erlendis og auðveldi fyrirtækinu að skila hlutverki sínu til fulls. Enn fremur sagði Róbert teikn á lofti um að Reykjavíkurflugvöllur yrði áfram í Vatnsmýrinni og Flugstoðir kæmu til með að gegna lykilhlutverki við að varpa ljósi á þá stefnu sem tekin yrði í málefnum vallarins.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar Sjá meira