Innlent

Bretar lýstu yfir stríði

Bretar lýstu yfir stríði við Ísland þegar þeir frystu eignir íslenskra fyrirtækja úti. Þetta segir formaður Pétur H. Blöndal, efnahags- og skattanefndar Alþingis. Hann segir ekki hægt að skilja orð fulltrúa viðskiptalífsins á nýlegum nefndarfundi öðruvísi en að Bretar neyti aflsmunar til að fá bankakerfi erlendra ríkja til að mismuna Íslandi.

Bresk sendinefnd situr enn á fundi með íslenskri í utanríkisráðuneytinu og ræðir hvernig eigi að leysa mál tengd Icesave. Bretar hafi krafist tryggingar Íslands fyrir inneigum. Rætt er um lán frá Bretum og Hollendingum upp á 600 milljarða króan til að standa undir skuldbindingum.

Lausn þessa máls jafnvel sögð tefja samninga Íslands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Á meðan eru eignir Landsbankans í Bretlandi enn frystar samkvæmt hryðjuverkalögum.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×