Orka landsins nýtt af skynsemi og náttúruperlum hlíft 3. september 2008 15:01 MYND/GVA
Ríkisstjórnin mun byggja upp íslenskt atvinnulíf með því að nýta orku landsins af skynsemi og gæta þess að ekki verði farið inn á þær náttúruperlur sem þjóðin telur að ekki mega raska. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sem skiptist á föstum skotum við Steingrím J. Sigfússon, formann Vinstri - grænna, í utandagskrárumræðu um stefnu ríkisstjórnarinnar í virkjana- og stóriðjumálum á Alþingi í dag. Spurði Steingrímur hvort það væri stefna ríkisstjórnarinnar að dæla tveimur til tveimur og hálfu álveri og olíuhreinsistöð inn í hagkerfið og benti á að ef það væri raunin þyrfti að virkja mikið. Spurði hann enn fremur hvernig slík stefna rímaði við yfirlýsingar Samfylkingarinnar um að pláss væri fyrir eitt lítið álver eða stækkun álversins í Straumsvík innan loftlagsskuldbindinga Íslands. Spurði hann enn fremur hvað Samfylkingin segði um að frekari álvæðing hér á landi yki einhæfni íslensks atvinnulífs og hvort menn væru tilbúnir til að gera Ísland jafnháð heimsmarkaði á áli og þjóðin var háð sjávarútvegi á fyrri áratugum. Þjóðin vill ekki fleiri álver Steingrímur spurði jafnframt iðnaðarráðherra hvort virkja ætti í neðri hluta Þjórsár og hvor ráðherra myndi beita sér fyrir eignarnámi á löndum þar svo áformin næðu fram að ganga og hvort fórna ætti Skjálfandafljóti og Jökulánum í Skagafirði. Enn fremur benti hann á að þrátt fyrir krepputal vildi þjóðin ekki fleiri álver en menn væru hins vegar ekki andvígir hóflegri orkunýtingu. Spurði hann hvort það væri stefna ríkisstjórnarinnar að öll stóriðjuáform frá fyrri ríkisstjórn væru í gangi og með hvaða veganesti ráðherrar Samfylkingarinnar ætluðu til Kaupmannahafnar til þess að ræða um heimildir til losun gróðurhúsalofttegunda. Enn fremur hvort ríkisstjórnin væri staðráðin að ástunda hrossalækningar í hagkerfinu og keyra inn í hagkerfið tvö til þrjú risavaxin stóriðjuverkefni. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sagði erfitt að fylgja hinum rökræna þræði í ræðu Steingríms og að formaður Vinstri - grænna hefði ausið úr skálum reiði sinnar um hugaróra sína um þau verk sem væru á borðinu. Benti Össur á ekki stæði til að virkja Jökulsá á Fjöllum og þá sagðist hann hafa lýst því áður að honum litist ekki vel á olíuhreinsistöð á Vestfjörðum. Varðandi gagnrýni Steingríms á að orku skorti fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sagði Össur að á næstu árum yrði hægt að afla orku fyrir þau. Getur ekki tjáð sig um virkjanir í Þjórsá Þá sagðist hann ekki getað tjáð sig um áform um virkjanir í neðri hluta Þjórsár þar sem hann sem ráðherra þyrfti að skera úr um virkjanaleyfi og hugsanlega úrskurða um eignarnám. Þá rifjaði hann upp að Steingrímur hefði á Alþingi fyrir nokkrum misserum sagt að Þjórsárvirkjanir væru ákjósanlegri en margir aðrir virkjanakostir. Þá blasti það við að enginn þingmaður í þingsal hefði stutt stóriðju á landinu jafnmikið í gegnum tíðina og Steingrímur J. Sigfússon. Hann hefði verið í flokkum sem hefðu stutt álver og stóriðju og flutt mikinn lofsöng um gæði áls sem umhverfisvæns málms. Þetta yrðu menn að hafa í huga þegar hlustað væri á þann endemis málflutning sem Steingrímur bæri fram, sagði ráðherra. Ríkisstjórnin fylgjandi Bakkaálveri Þá sagði Össur að ríkisstjórnarflokkarnir hefðu náð saman um að ekki yrði farið inn á verðmæt náttúrusvæði til virkjunar og þrátt fyrir allan hávaðann hefði Steingrímur ekki getað bent á eitt tilvik þar sem það hefði verið gert. Ríkisstjórin myndi byggja upp íslenskt atvinnulíf með því að nota orku landsins af skynsemi og gæta þess að ekki yrði farið inn á þær náttúruperlur sem þjóðin teldi að ekki mætti raska. Minnti hann á rammaáætlun um nýtingu vatnsafls sem unnin hefði verið og rammaáætlun um nýtingu jarðhita væri í vinnslu. Þá sagði Össur að ríkisstjórnin styddi álver á Bakka en hvorki núverandi né fyrrverandi ríkisstjórn hefði komið að ákvörðun um álver í Helguvík. Benti Össur enn fremur á að Steingrímur hefði sagt skömmu eftir síðustu kosningar að það væri tæknilega ókleift að stöðva Helguvíkurálver og að það yrði ekki afarkostur af hálfu Vinstri - grænna í stjórnarmyndunarviðræðum. Vinstri - græn hefðu verið tilbúin að kaupa sig inn í ríkisstjórn með því að hverfa frá prinsippum sínum.
Mest lesið Liggur þungt haldinn eftir stórfellda líkamsárás í Hlíðunum Innlent „Við erum engir rasistar“ Innlent Stimpingar milli mótmælenda á Austurvelli Innlent Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglundar Innlent „Mæta á næstu Palestínumótmæli og berja þetta lið“ Innlent Sagðist ekki hafa orðið var við átök: „Ég var eins og pabbi þeirra“ Innlent Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Innlent „Ef fram heldur sem horfir verður Aþena lögð niður í næstu viku“ Innlent „Glútenóþol var orðið óhreinn hattur yfir þetta allt saman“ Innlent Engin smithætta vegna veikinda í vélinni Innlent Fleiri fréttir Kostar tugi milljóna að skilja húsgögn eftir „Fallegur dagur“ fyrir útskrift Banaslysið haft áhrif á undirbúning manngerðra íshella Sagðist ekki hafa orðið var við átök: „Ég var eins og pabbi þeirra“ Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli Einn fékk rúmar fimmtíu milljónir Lengri opnunartímar sundlauga taka gildi „Við erum engir rasistar“ Kolmónoxíðeitrun talin vera orsök veikinda í flugvél Hasar á tvöföldum mótmælum, flugsýning og tryllitæki í beinni Liggur þungt haldinn eftir stórfellda líkamsárás í Hlíðunum Nikótínþurfi guðsbarn braust inn í Bjarnabúð „Ef fram heldur sem horfir verður Aþena lögð niður í næstu viku“ Stimpingar milli mótmælenda á Austurvelli Sigríður svarar gagnrýni á störf lögreglunnar á Suðurnesjum Tíundi hver með ágætiseinkunn í MR Engin smithætta vegna veikinda í vélinni Segir Viðskiptablaðið og Samstöðina fara rangt með mál um Ásthildi Lóu Kökuskreytingar og þjóðdansar á „Fjör í Flóa“ í dag Tvenn mótmæli í Reykjavík og herþota á flugsýningu „Mæta á næstu Palestínumótmæli og berja þetta lið“ Missa fatamarkaðinn með flutningi Konukots í Ármúla „Glútenóþol var orðið óhreinn hattur yfir þetta allt saman“ Ók hlaupahjólinu á tré með pizzu í annarri Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglundar Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri Hefur skilning á báðum sjónarmiðum í Heiðmerkurmálinu Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Umferðartafir vegna framkvæmda við Kringlumýrarbraut í sumar Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Sjá meira