Stjórnarflokkar þurfi að semja upp á nýtt ef ganga á í ESB 28. apríl 2008 15:59
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að ef ganga eigi í ESB þurfi stjórnarflokkarnir að gera nýjan stjórnarsáttmála og Sjálfstæðisflokkurinn að skipta um skoðun og það sé ekki meiningin. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar, þingflokksformanns Frjálslynda flokksins. Kristinn sagði mikla umræðu hafa verið um Evrópumál eftir að Fréttablaðið hefði birt nýja könnun um stuðning við aðildarviðræður. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins hefði lýst því yfir að ekki yrði sótt um aðild að Evrópusambandinu á kjörtímabilinu en formaður Samfylkingarinnar vildi ekki útiloka það. Spurði Kristinn hver afstaða ríkisstjórnarinnar væri í málinu, hvort hún myndi undirbúa umsókn að ESB á þessu kjörtímabili eða hvort það væri útilokað. Þá spurði hann enn fremur út í orð formanns Samfylkingarinnar um að allir væri til í þá vinnu að breyta stjórnarskránni á þann veg að unnt yrði að framselja dómsvald, framkvæmdavald og og löggjafarvald til ESB til þess að undirbúa aðild að sambandinu. Spurði hann ráðherra hvort ríkisstjórnin myndi beita sér fyrir því að að breyta stjórnarskránni á kjörtímabilinu. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði enga afstöðu hafa verið tekna til þess hvort breyta ætti stjórnarskránni en það yrði ekki gert fyrr en í lok kjörtímabils ef breytingar yrðu lagðar til. Hvað varðaði Evrópusambandið þá væru stjórnarflokkarnir með ólíka stefnu í þeim málaflokki og hvorugur hefði samið um að breyta afstöðu sinni þegar stjórnarsáttmálinn hefði verið gerður. Það segði ekkert í sáttmálanum um að það ætti að ganga í Evrópusambandið en hins vegar ætti að setja á fót sérstaka nefnd til þess að fylgjast með þróun Evrópumála. Forsætisráðherra sagði enn fremur að það stæði í sjálfu sér ekki í sáttmálanum að það ætti ekki að ganga í ESB en til þess að það myndi gerast þyrftu stjórnarflokkarnir að semja upp á nýtt og sjálfstæðismenn að skipta um skoðun og það væri ekki meiningin. Kristinn þakkaði skýr svör ráðherra og sagði að það lægi þá ljóst fyrir að ríkisstjórnin myndi ekki hefja undirbúning að umsókn um aðild að Evrópusambandinu eða sækja um aðild á kjörtímabilinu.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Innlent Fleiri fréttir Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Sjá meira