Innlent

Brennur um alla borg, nema á Ártúnsholtinu

Vel gengur að safna í bálkesti fyrir áramótin og að sögn Jóns Bergvinssonar, brennukóngs og rekstrarfulltrúa á hverfastöð Framkvæmda- og eignasviðs er búið að loka fyrir móttöku á flestar þeirra sem eru í umsjá Reykjavíkurborgar.

„Um þessi áramót verða 9 áramótabrennur í Reykjavík. Þar af eru sex borgarbrennur en þær eru alfarið á ábyrgð Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar," segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. „Búið var að gefa út að brennurnar yrðu tíu talsins, en nú er ljóst að ekki verður brenna í Ártúnsholti eins og verið hefur undanfarin ár."

Kveikt verður í öllum brennum kl. 20:30 á gamlárskvöld, að frátalinni einni. Undantekningin er brennan í Skerjafirði en tendrað verður á henni kl. 21:15 að aflokinni blysför frá Bauganesi, sem hefst kl. 21:00.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×