Innlent

Vara ferðamenn við óvæntum hættum

Skoskur ferðamaður slasaðist þegar hann féll í íshelli í Sólheimajökli í gær. Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur sett upplýsingaefni inn á Netið til að vara erlenda ferðamenn við ýmsum óvæntum hættum hér á landi.

Samferðamenn Skotans kölluðu á bjögunarsveit og óskað var eftir þyrlu frá Landhelgisgæslunni en eftir að ljóst varð að maðurinn var minna meiddur en talið var í upphafi var aðstoð þyrlunnar afturkölluð. Björgunarsveitarmenn báru manninn niður í sjúkrabíl sem flutti hann á Slysadeild Landsspítalans. Hann reyndist fótbrotinn en ekki alvarlega meiddur að öðru leyti.

Nokkuð hefur verið um það í vor að erlendir ferðamenn hafi slasast úti í náttúrunni hér, snúið sig í sprungum, hrasað í skriðum og brennt sig á hveraasvæðum, svo eitthvað sé nefnt. Ekki liggja fyrir tölur um þessi slys og óhöpp en greinilegt þykir að að aðstæður hér koma mörgum útlendingum í opna skjöldu.

Landsbjörg er þessa dagana að koma á framfæri varnaðarorðum og leiðbeiningum sem vonast er til að rati til erlendra ferðamanna og aðgengileg eru undir slóðinni safetravel.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×