Greint frá samningi við IMF um leið og samkomulag liggur fyrir 30. október 2008 13:01
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að greint verði frá samkomulagi stjórnvalda við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF) um aðgerðir í efnahagsmálum um leið og sjóðurinn hafi lagt blessun sína yfir lán til Íslands.Stjórnarandstaðan kallaði eftir því í umræðum á Alþingi um stöðu efnahagsmála að skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins yrðu gerð opinber. Vildu stjórnandstæðingar taka þátt í stefnumótun í málinu. Þá var deilt um það hver bæri ábyrgð á hækkun stýrivaxta fyrr í vikunni.Geir sagði fulltrúa ríkisstjórnarinnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa komist að niðurstöðu um efnahagsáætlun um að bregðast við núverandi aðstæðum. Á grundvelli slíkrar áætlunar væri sjóðurinn tilbúinn að lána fé. Sagði Geir að skjal um aðgerðir stjórnvalda og stöðu mála verða sent utan á morgun og það yrði birt um leið og hægt væri.Benti Geir á að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn væri stór og mikil stofnun og innan veggja hans giltu ákveðnar leikreglur. Hver og ein ríkisstjórn gæti ekki spilað út öllum upplýsingum sem henni hentaði. Þá hafnaði hann þeim fullyrðingum Ögmundar Jónassonar, þingflokksformanns Vinstri - grænna, um að samkomulagið við IMF væri leyniplagg. Það yrði birt um leið og samkomulag lægi fyrir.Rangt að IMF vilji koma illu til leiðar hér á landiGeir sagði að í samkomulaginu væri vikið að vaxtamálum og vísaði einnig til athugasemda Seðlabankans í morgun um það hver hefði átt hugmyndina að vaxtahækkunina. Ríkisstjórnin og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefðu farið vel yfir málið og að viðræðunum hefði komið fulltrúi Seðlabankans. Hér væri því um þríhliða samstarf að ræða þótt það væru fyrst og fremst ríkisstjórnin of sjóðurinn sem hefðu unnið að honum.Geir sagði enn fremur að vonandi yrði vaxtahækkunin skammtímaaðgerð og verið væri að búa gjaldeyrismarkaðinn þannig úr garði að krónan fengi verð. Þeir sem hefðu beðið um samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hefðu vitað að til þessa gæti komið.Þá sagði ráðhera það rangt að gefa sér að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn væri að koma illu til leiðar hér á landi og pína launþega eins og Vinstri - græn hefði haldið fram. Taldi hann að það myndi sannast í samstarfi við sjóðinn. Samstarfið yrði til tveggja ára og það myndi vonandi leiða til þess að Íslendingar væru komnir í gegnum mestu erfiðleikana og tekjur og kaupmáttur myndu hækka aftur. Til þess að þetta gæti gengið upp þyrfti að teyga beyskan bikar í upphafi í formi vaxtahækkunar.Breytt staða í RússaviðræðumUm viðræður við Rússa sagði Geir að þeim væri ekki lokið eins og einhverjir héldu fram. Hitt væri rétt að staðan væri mjög breytt frá því að talað hefði verið við þá í upphafi. Staðan í Rússlandi væri breytt og okkar ástand væri allt annað en í sumar þegar byrjað hefði verið að tala við þá.Umræður um stöðu efnahagsmála og samninginn við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn standa enn á Alþingi og eru 20 þingmenn á mælendaskrá
Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Erlent Fleiri fréttir „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Sjá meira