Segja stöðu Samherja sterka þrátt fyrir efnahagsóvissu 30. október 2008 09:34 Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja. MYND/GVA
Forsvarsmenn sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja fullyrða að staða fyrirtækisins sé sterk þrátt fyrir óvissu í efnahagsmálum. Fyrirtækið hafi ekki farið varhluta af ástandinu en Samherji verði ekki fyrir eins miklum áhrifum því fyrirtækið sé alþjóðlegur matvælaframleiðandi. Á heimasíðu fyrirtækisins segir að mikil hagræðing hafi orðið hjá því undanfarin ár og mun betri afkoma erlendrar starfsemi styrki félagið til þess að takast á við þau verkefni sem menn standi frammi fyrir. „Allt frá árinu 2006 hefur íslenska krónan verið mjög sterk og óhagstæð útflutningsgreinum. Við þessar aðstæður hefur Samherji hægt á fjárfestingum, selt eignir og hagrætt í rekstrinum. Því er fyrirtækið undir það búið að mæta þeim erfiðleikum sem nú steðja að. Undanfarnar vikur hefur síðan verið unnið sleitulaust að því að aðlaga reksturinn að breyttum aðstæðum hér á landi og á mörkuðum okkar erlendis. Helstu viðfangsefni á því sviði tengjast greiðsluflæði til og frá fyrirtækinu og samstarfsfyrirtækjum þess," segir á heimasíðu Samherja. Bent er á að staðan á heimsmarkaði sé viðkvæm og enginn geti í raun sagt til um þróun næstu mánaða. Engu að síður sé núverandi staða Samherja sterk og félagið í stakk búið til að standa af sér þá erfiðleika sem að steðja.
Mest lesið Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Fleiri fréttir Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Sjá meira
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent