Innlent

Sex mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur

Hæstiréttur stytti í dag dóm yfir karlmanni sem sakfelldur var fyrir ölvunarakstur. Hann hafði í héraði verið dæmdur í átta mánaða fangelsi en dómurinn var styttur um tvo mánuði.

Með brotinu rauf hann skilorð reynslulausnar sem hann hafði fengið á 105 daga eftirstöðvum fangelsisrefsingar og var tekið tillit til þess þegar dómur var kveðinn upp. Maðurinn hafði ítrekað verið sakfelldur fyrir ölvunarakstursbrot.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×