Erlent

Pólskur prestur í verkfall vegna nísku sóknarbarna sinna

Pólskur prestur er farinn í verkfall sökum þess að hann hefur gefist upp á nísku sóknarbarna sinna.

Söfnunarbaukur kirkju hans er iðulega tómur að lokinni messu. Því hefur faðir Lenart í héraðinu Deskóvís ákveðið að standa þögull við altari sitt í 15 mínutur í stað þess að flytja söfnuði sínum guðsorðið á hverjum sunnudegi.

Eitt sóknarbarna Lenart er ekki hrifið af þessum aðgerðum prestsins og segist einfaldlega vera of blankt til að geta gefið í söfnunarbaukinn. Faðir Lenart af öllum mönnum ætti að skilja slíkt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×