Mótmæli við Seðlabankann í hádeginu 10. október 2008 10:33 MYND/GVA
Boðað hefur verið til mótmæla fyrir framan Seðlabankann í hádeginu þar sem þess verður krafist að stjórn Seðlabankans segi af sér. Hrafnkell Orri Egilsson stendur að mótmælunum ásamt vinkonu sinni sem er í Frakklandi og finnur fyrir þeirri óreiðu sem er í gjaldeyrismálum landsins. Hugmyndin kviknaði eftir hádegi í gær. „Okkur var bara nóg boðið. Hún er reið og leið yfir ástandinu og okkur finnst tímabært að þeir sem hafa gert mistök axli ábyrgð á ástandinu. Það er grafalvarlegt ástand í gjaldmiðilsmálum og sorglegt að þjóðin hafi beðið skipbrot þrátt fyrir að búið hafi verið að vara við þessu," segir Hrafnkell. Hann segir að krafist verði þess að öll stjórn Seðlabankans segi af sér og axli þannig ábyrgð á mistökum sínum í peningamálastjórn. „Við lítum þannig á að það séu góð skilaboð til erlendra aðila að það sé verið að vinna í því að endurreisa trúverugleika í íslenska stjórnkerfinu," segir Hrafnkell og segir það gott fyrsta skref að skipa einhvern í stjórn seðlabankans sem sé hæfur og njóti trausts. Safnast verður saman við styttuna af Ingólfi Arnarsyni kl. 12 og rölt yfir að torginu fyrir framan Seðlabankann. Nallinn verður sunginn og gjallarhorn verður til staðar fyrir þá sem taka vilja til máls. Aðspurður hvort hann eigi von á fjölmenni í mótmælunum segir Hrafnkell að fjölmargir hafi þegar skráð sig á Facebook-síðu mótmælanna. Þar hafa 200 manns staðfest komu sína. „Við viljum að fólk fái tækifæri til þess að tjá tilfinningar sínar og fái útrás fyrir reiði eða leiða eða eitthvað annað," segir Hrafnkell.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Fleiri fréttir Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Sjá meira