Erlent

Lífshættulegur kólerufaraldur í Írak

Lífshættulegur kólerufaraldur herjar nú á íbúa Babil héraðsins suður af Bagdad í Írak.

Ástæðan fyrir faraldrinum eru spilltir embættismenn sem létu múta sér til að kaupa klórín frá Íran sem var komið löngu fram yfir síðasta söludag sinn en það var svo notað til að sótthreinsa vatnsból.

Sökum þessa hefur um helmingur af sex milljón íbúum Bagdad ekki lengur aðgang að öruggu drykkjarvatni. Rúmlega 400 manns hafa nú sýkst af kóleru og sjö eru látnir af sjúkdóminum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×