Innlent

Lögregla leitar eiganda sportbáts

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eiganda sportbáts sem fannst á sumarbústaðalandi skammt frá Reykjavík.

Lögregla hefur sent fjölmiðlum mynd af honum og er hann á kerru en ekki er vitað hver eða hverjir komu bátnum fyrir á umræddum stað. Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×