Innlent

Nærri 60% ökumanna óku of hratt í Norðurfelli

Um 59% ökumanna sem fóru um Norðurfell í vesturátt í dag óku of hratt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 94 ökutæki þessa akstursleið og óku 55 þeirra of hratt.

Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 47 kílómetra á klukkustund en þarna er 30 km hámarkshraði. Tuttugu og einn ók á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 62. Á þessum stað í Norðurfelli eru bæði merktar gangbrautir og hraðahindranir.

Vöktun lögreglunnar í Norðurfelli er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en Fellaskóli stendur við götuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×