Þorsteinn skýtur fast á Davíð 23. september 2008 12:47
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega framgöngu Davíðs Oddssonar, eftirmanns síns í formannsstóli og núverandi Seðlabankastjóra, í leiðara Fréttablaðsins í dag. Þorsteinn gefur í skyn að Davíð hafi farið út fyrir verksvið sitt þegar hann lýsti skömm og fyrirlitningu á þeim sem mælt hafa með upptöku evru í viðtali á Stöð 2. Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins og fyrrverandi formaður, Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra hefur blandað sér í umræðuna um peningamálastjórnina með afgerandi hætti. Hinn 12. september skrifaði hann leiðara þar sem hann sagði peningamálastefnuna hafa beðið skipbrot og enginn hefði fært haldbær rök fyrir því að halda í krónuna. Sex dögum síðar var Davíð Oddsson í frægu viðtali í Íslandi í dag þar sem hann skaut föstum skotum að öllum þeim sem gerðu ógæfulega og óskiljanlega atlögu að krónunni við núverandi aðstæður. Jónas Haralz er einn þeirra sem mælt hefur með evrunni og sagt krónuna haldlitla. Þorsteinn Pálsson minnir á stórt hlutverk hans í hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins, en hann hefði samið tímamótayfirlýsingu um endurreisn í anda frjálshyggju á sínum tíma. „Sú yfirlýsing var helsti hugmyndafræðilegi grundvöllur þeirra umbreytinga á efnahagsstjórn sem smám saman urðu að veruleika á níunda og tíunda áratugnum í fjórum mismunandi samsettum ríkisstjórnum Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins. Ósmá áhrif," segir Þorsteinn í leiðara dagsins. Hann rifjar upp greinar eftir Jónas og annan mætan sjálfstæðismann, Einar Beneditksson. „Í greinum þeirra kom ennfremur fram ósk um að Seðlabankinn gerði ítarlega grein fyrir árangri peningamálastefnunnar sem fylgt hefur verið frá aldamótum," segir Þorsteinn og nú liggi svar formanns bankastjórnar Seðlabankans fyrir einkar skýrt og afdráttarlaust í viðtalinu á Stöð 2. „Bankastjórarnir, einn fyrir alla og allir fyrir einn, líta einfaldlega svo á að slíkur málflutningur sé „lýðskrum" og á honum hafi menn á þeim bæ bæði „skömm" og „fyrirlitningu". Sannarlega er ekki unnt að kvarta yfir því að svör hafi ekki fengist við hógværri beiðni." Þorsteinn minnir á að lög mæli fyrir um sjálfstæði Seðlabankans en: „Lögin mæla þó fyrir um að bankastjórnin skuli ekki sinna öðrum viðfangsefnum en þeim sem samræmast hlutverki seðlabanka," segir Þorsteinn og klikkir út með þessum orðum: „Spurt hefur verið hvort bankastjórnin hafi farið út fyrir verksvið sitt í þessu svari og inn á pólitískan vettvang. Að lögum ber ríkisstjórnin ábyrgð á að slíkt gerist ekki."
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira