Staða fatlaðra verst á Suðvesturhorninu Magnús Már Guðmundsson skrifar 27. júní 2008 10:28 Gerður A. Árnadóttir, formaður Þroskahjálpar. MYND / www.khi.is
Gerður A. Árnadóttir, formaður Þroskahjálpar, segir að staðan í málefnum fatlaðra sé verst í Reykjavík, höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi. ,,Það er pólitísk ákvörðun tekin af Alþingi sem ákvað að setja ekki aukið fjármagn í málaflokkinn á svæðinu. Á seinsta ári kölluðum við eftir auknu fjármagni í uppbyggingu en töluðum fyrir daufum eyrum," segir Gerður. Að mati Gerðar er staða fatlaðra á landsbyggðinni almennt betri en á Suðvesturhorninu. ,,Smæð bæjarfélaga hefur þau áhrif að auðveldara reynist að halda utan um einstök mál. Hlutfallslega fer meira fjármagn til landsbyggðarinnar," segir Gerður bætir við að mest fólksfjölgun hefur átt sér stað á Suðvesturhorninu en fjármagn hafi ekki fylgt með. Jóhanna Sigurðardóttir sagði fyrr í vikunni í samtali við Vísi að 800 til 900 milljónir hafi verið settar aukalega í málaflokkinn á árunum 2007 til 2008. Gerður telur að meirihluti þeirrar upphæðar hafi farið í málefni geðfatlaðra. ,,Það er mikið fagnaðarefni og afskaplega brýnt verkefni sem Íslendingar hafa ekki sinnt árum og áratugum saman," segir Gerður. Að sama skapi hafi dregið úr uppbyggingu fyrir aðra hópa og samhliða aukist vandamál þeirra. ,,Aðrir hópar fatlaðra voru settir á hold," segir Gerður. Gerður segir að í góðærinu hafi ekki mátt setja fjármagn í málaflokkinn þar sem það myndi auka þenslu. ,,Svo þegar að kreppan kemur er ekki hægt að fá pening í málefni fatlaðra af því þeir eru sagðir ekki vera til staðar. Það segir ansi mikið um viðhorfið ef þessi hópur á sífellt að líða fyrir ástand efnahagsmála. Það er með öllu óásættanlegt," segir Gerður. Gerður bindur miklar vonir við að hagur fatlaðra og aðstandenda þeirra muni vænkast þegar málefni fatlaðra verða færð frá ríki til sveitarfélaga. Gerður segir að ekki gangi að færa málaflokkinn óbreyttan yfir til sveitarfélaganna. ,,Það þarf að bæta við fjármagni og það strax. Ef það á að gera þetta á pari við það fjármagn sem er í dag þá geta menn bara sleppt þessari tilfærslu," segir Gerður.
Tengdar fréttir Kerfið er á hraða snigilsins Foreldraráðgjafi Þroskahjálpar á Suðurnesjum segir að ástandið á svæðinu sé afar slæmt. ,,Kerfið er á hraða snigilsins og fylgir ekki eftir þörfinni hverju sinni." 18. júní 2008 17:00 Jóhanna: Málefni fatlaðra í forgangi Jóhanna Sigurðardóttir segir málefni fatlaðra vera í forgang. ,,Málefni fatlaðra hafa verið í forgang hjá mér og þannig verður það áfram. Stoðþjónustan hefur verið efld og á milli 800 og 900 milljónir voru settar aukalega í málaflokkinn," segir Jóhanna. 24. júní 2008 09:33 Foreldrar fatlaðra barna missa trú á kerfinu Foreldraráðgjafi hjá Sjónarhóli segir foreldra og aðstandendur einstaklinga með þroskahömlun sem þurfa að leita eftir aðstoð missa á endanum trú á kerfinu. ,,Foreldrar tala um endalausa bið sem geri þá uppgefna. Í framhaldinu missa þeir trú á kerfinu og stuðningsnetinu sem hefur alvarlegar afleiðingar." 19. júní 2008 09:18 Árni stendur með foreldrum fatlaðra Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segist vita að aðstæður foreldra fatlaðra barna eru ,,víða erfiðar og við viljum standa með þeim." 19. júní 2008 13:59 Móðir fatlaðs drengs: Úrræðaleysi eykur þunglyndi ,,Það er lágmark að lögum sé framfylgt. Í þeim segir að allir eigi rétt á búsetu og vinnu við hæfi," segir Birna Sigbjörnsdóttir, móðir fatlaðs drengs á Suðurnesjum. 18. júní 2008 16:15 Mest lesið Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Innlent Fleiri fréttir Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Sjá meira
Kerfið er á hraða snigilsins Foreldraráðgjafi Þroskahjálpar á Suðurnesjum segir að ástandið á svæðinu sé afar slæmt. ,,Kerfið er á hraða snigilsins og fylgir ekki eftir þörfinni hverju sinni." 18. júní 2008 17:00
Jóhanna: Málefni fatlaðra í forgangi Jóhanna Sigurðardóttir segir málefni fatlaðra vera í forgang. ,,Málefni fatlaðra hafa verið í forgang hjá mér og þannig verður það áfram. Stoðþjónustan hefur verið efld og á milli 800 og 900 milljónir voru settar aukalega í málaflokkinn," segir Jóhanna. 24. júní 2008 09:33
Foreldrar fatlaðra barna missa trú á kerfinu Foreldraráðgjafi hjá Sjónarhóli segir foreldra og aðstandendur einstaklinga með þroskahömlun sem þurfa að leita eftir aðstoð missa á endanum trú á kerfinu. ,,Foreldrar tala um endalausa bið sem geri þá uppgefna. Í framhaldinu missa þeir trú á kerfinu og stuðningsnetinu sem hefur alvarlegar afleiðingar." 19. júní 2008 09:18
Árni stendur með foreldrum fatlaðra Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segist vita að aðstæður foreldra fatlaðra barna eru ,,víða erfiðar og við viljum standa með þeim." 19. júní 2008 13:59
Móðir fatlaðs drengs: Úrræðaleysi eykur þunglyndi ,,Það er lágmark að lögum sé framfylgt. Í þeim segir að allir eigi rétt á búsetu og vinnu við hæfi," segir Birna Sigbjörnsdóttir, móðir fatlaðs drengs á Suðurnesjum. 18. júní 2008 16:15