Sýknaður af hnífstungu við Hellisheiðarvirkjun 27. júní 2008 14:21 MYND/Vilhelm
Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag pólskan karlmann af ákæru um líkamsárás. Honum var gefið að sök að hafa lagt til samlanda síns með eggvopni þanning að hann fékk skurð á kálfa. Atvikið átti sér stað í vinnubúðum við Hellisheiðarvirkjun í nóvember í fyrra. Málið vakti nokkra athygli á síðasta ári en nokkur fjöldi verkamanna var ölvaður á staðnum þar sem árásin átti sér stað. Hinn ákærði gaf sig fram við lögreglu daginn eftir árásina þegar hann frétti að hún leitaði hans og sat hann í varðhaldi um tíma vegna málsins. Við leit á heimili hans í Reykjavík fundust hnífar sem lagt var hald á en við rannsókn á þeim fundust engar blóðleifar. Lagt var hald á fatnað mannsins og ekkert athugavert fannst á honum. Maðurinn neitaði sök í málinu en viðurkenndi að til átaka hefði komið á milli hans og fórnarlambsins í reykherbergi vinnubúðanna. Þau átök hefðu borist út gang og þar hefði verið mikill fjöldi manna. Héraðsdómur benti á engin vitni væru að því að hinn ákærði hefði lagt til fórnarlambsins og þá hefði ekkert fundist á fatnaði hans. „Flestir viðstaddra virðast hafa verið undir áhrifum áfengis og þegar litið er til fjölda þeirra er á vettvangi voru og þrengslna á ganginum er ekki loku fyrir það skotið að einhver annar en ákærði hafi veitt kæranda umrædda áverka. Verður því ekki hjá því komist að sýkna ákærða af kröfum ákæruvaldsins í máli þess,“ segir Héraðsdómur Suðurlands.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Sjá meira