Framtíð Alþjóðahvalveiðiráðsins sett í nefnd 27. júní 2008 15:43
Ársfundur Alþjóðahvalveiðiráðsins, sem lauk í dag, ákvað að stofna vinnuhóp sem ætlað er að vinna að lausn ágreiningsmála sem hamlað hafa starfi ráðsins undanfarin ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Tilgangurinn með starfi vinnuhópsins er að gera Alþjóðahvalveiðiráðinu kleift að uppfylla hlutverk sitt varðandi vernd hvalastofna og stjórn hvalveiða. Ákvörðunin felur í sér að fram að næsta ársfundi verður áhersla lögð á að finna lausnir á ágreiningsmálum innan ráðsins. Djúpstæður ágreiningur hefur verið um grundvallaratriði svo sem um hvort sjálfbærar hvalveiðar séu réttlætanlegar. Ljóst er að hópsins bíður erfitt verkefni. Ísland studdi tillöguna og mun taka þátt í starfi vinnuhópsins. Önnur mál voru til umfjöllunar á ársfundinum. ,,Í því sambandi má nefna ítrekun á fordæmingu ráðsins á aðgerðum mótmælenda sem trufluðu löglegar hvalveiðar Japana með hættulegu atferli. Aðildarríki ráðsins voru hvött til aðgerða í þessu sambandi. Í umræðum um þetta mál lagði Ísland áherslu á aðgerðir ríkja sem koma beint að málinu sem fánaríki, hafnríki eða ríki þar sem samtök sem stundi þessa iðju eru með skráða starfsemi," segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina út af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Sjá meira