Björn Bjarnason tók útvarpskonu á beinið 25. nóvember 2008 13:00 Helga Vala Helgadóttir fyrrum útvarpskona á Rúv.
Fyrrum útvarpskonan Helga Vala Helgadóttir segir frá því á bloggsíðu sinni þegar hún var tekin á beinið af Birni Bjarnasyni. Þá var hún einn af umsjónarmönnum Spegilsins og fékk símtal frá ráðherranum í gsm síma sinn. „Benti mér sömuleiðis á að ég skyldi vara mig á því að þetta væri ríkisfjölmiðill og því ekki sjálfsagt að vera með umfjöllun þar sem gagnrýndi stjórnvöld svona. Undir lá vissulega að hann hefði völd til að láta mig fara. Þetta var á þeim tíma sem Spegillinn átti fótum sínum fjör að launa í samskiptum við útvarpssstjórann Markús Örn Antonsson og fleiri innanhússmenn sem ég nenni ekki að nefna," skrifar Helga Vala á bloggsíðuna. Hún segir einnig frá því þegar Halldór Ásgrímsson tók hana á beinið eftir viðtal sem hún tók við hann í ráðuneytinu við Rauðarárstíg. „Eftir viðtalið, sem snérist meðal annars um þátttöku okkar í árárinni á Írak, missti Halldór stjórn á skapi sínu og ákvað að lesa yfir hausamótunum á fjölmiðlakonunni. Hvernig við voguðum okkur að halda uppi þessum áróðri í ríkisútvarpinu, að við værum greinilega í persónulegu agenda varðandi þetta stríð og að við yrðum að gæta okkar verandi hjá ríkisfjölmiðli," skrifar Helga Vala og bætir því við að þetta upphlaup hafi komið nokkuð á óvart þar sem hún átti því ekki að venjast að ráðmenn væru að æpa á sig. „En ég var nokkuð óskammfeilin þarna og svaraði hástöfum og af fremsta megni. Á endanum fór ég út af skrifstofunni og upp í útvarp, sorrý yfir því að hafa ekki haft tækið á upptöku á meðan á yfirhalningunni stóð." Hér er hægt að skoða bloggsíðu Helgu Völu.
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fleiri fréttir „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Sjá meira