Með milljarð inn á reikningnum sínum 25. nóvember 2008 18:30
Almennur borgarstarfsmaður sem setið hefur í gæsluvarðhaldi síðan á föstudaginn geymdi allt að einn milljarð króna á bankareikningum sínum. Hann er talinn tengjast máli forstöðumanns verðbréfafyrirtæksins sem grunaður er um peningaþvætti og fjársvik. Við sögðum frá því í fréttum okkar í gær að efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra fór fram á að Friðjón Þórðarson, sem er forstöðumaður hjá verðbréfafyrirtækinu Virðingu, yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hann hefur verið í haldi lögreglunnar síðan á sunnudag. Héraðsdómur hafnaði þeirri kröfu í dag. Hann verður að öllum líkindum látinn laus í kvöld eða á morgun. Rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á málefnum Friðjóns hófst eftir að ábendingar bárust um að almennur starfsmaður Orkuveitunnar, sem vinnur við eftirlit og umsjón með götuljósum, velti fleiri hundruð milljónum króna í gegn um bankareikninga sína. Í einhverjum tilfellum munu innistæður á bankareikningum borgarstarfsmannsins hafa verið rétt tæplega einn milljarður króna. Eftir að efnhagsbrotadeildin hóf rannsókn kom í ljós að maðurinn og félag tengt honum hafði fengið nokkur lán í Kauþingi aðeins til eins dags í senn til þess eiga umfangsmikil gjaldeyrisviðskipti. Grunur leikur á að þessi viðskipti hafi flest öll verið tengd Friðjóni. Friðjón er forstöðumaður verðbréfamiðlunar hjá verðbréfafyrirtækinu Virðingu og sem slíkur hafði hann oft á tíðum upplýsingur um með hvaða hætti skjólstæðingar Virðingar hugðist eiga gjaldeyrisviðskipti. Samkvæmt heimildum fréttastofu leikur grunur á að Friðjón, sem ekki var heimilt að eiga nein viðskipti af þessu tagi, hafi nýtt sér þessar upplýsingar úr starfi sínu til að eiga slík viðskipti og notað nafn og reikninga borgarstarfsmannsins. Ekki náðist í forstöðumann efnhagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra vegna málsins í dag.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Sjá meira