Innlent

Fær leyfi til kolvetnisleitar á Drekasvæði

Orkustofnun hefur í dag veitt norska olíuleitarfyrirtækinu Wavefield-InSeis þriggja ára leyfi til leitar að kolvetni á norðanverðu Drekasvæðinu og hefjast hljóðbylgjumælingar með mæliskipi fyrirtækisins væntanlega innan nokkurra daga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni.

Þar segir enn fremur að leitarleyfið veiti hvorki einkarétt til rannsókna né vinnslu á olíu eða gasi ef það finnst. Olíuleitarfyrirtæki selja hins vegar þeim olíufyrirtækjum gögn sín, sem áhuga hafa á að fá einkaleyfi til rannsókna og vinnslu á afmörkuðum svæðum.

„Fyrirhugað er útboð einkaleyfa til rannsókna og vinnslu kolvetna á norðanverðu Drekasvæðinu um miðjan janúar 2009. Orkustofnun fær öll gögn sem safnað er samkvæmt leitarleyfinu til varðveislu og getur notað þau í þágu þekkingaröflunar ríkisins um auðlindir, en gætir jafnframt trúnaðar um þau gagnvart öðrum," segir enn fremur í tilkynningunni. Þar kemur einnig fram að fyrirtækið hafi verið á svæðinu árið 2001 við mælingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×