Síðasta útskrift Kennaraháskóla Íslands á morgun Nanna Hlín Halldórsdóttir skrifar 13. júní 2008 12:39 Ólafur Proppé lætur af störfum sem rektor KHÍ þegar skólinn sameinast Háskóla Íslands.
Á morgun kl. 11 munu 496 kandídatar útskrifast úr KHÍ í Laugardagshöll. Mun þetta verða seinasta útskrift úr Kennaraháskólanum en háskólinn er að fara að sameinast Háskóla Íslands 1. júli næstkomandi. 409 eru að útskrifast úr grunnnámi og 86 úr framhaldsnámi, þar af 12 með meistaragráðu. Um seinustu helgi útskrifuðust fyrstu og seinustu nemendurnir með doktorsgráðu frá skólanum. KHÍ átti 100 ára afmæli á dögunum þannig að mikið er um merkisviðburði í kringum skólann um þessar mundir. ,,Sérstök tilfinning" var lýsingin sem Ólafur Proppé rektor KHÍ notaði yfir síðustu útskriftina á morgun í samtali við Vísi í dag. Hann segir bæði trega og tilhlökkun varðandi næsta skref skólans, trega að hætta að starfa undir því nafni sem skólinn hefur starfað undir í 100 ár en tilhlökkun yfir möguleikunum sem búa í því að starfa innan Háskóla Íslands og þroska og bæta stöðugt menntavísindi á landinu. Sjálfur mun hann hætta störfum stuttu eftir sameininguna, kominn á eftirlaunaaldur en hann segist líklegast munu taka að sér verkefni sem varða menntamál á landinu.Fimm ný svið innan Háskóla ÍslandsSteinunn Halldórsdóttir er verkefnastjóri sameiningar háskólanna tveggja. ,,Þetta gengur mjög vel" sagði hún um sameiningu skólanna. ,,Það verða þrjár deildir á Menntavísindasviði" en starfsemi Kennaraháskólans mun falla undir það svið innan Háskóla Íslands. Uppeldis og menntunarfræðiskor innan HÍ mun einnig falla undir það svið í uppeldis og menntunarfræðideild en annars mun Menntavísindasvið ná yfir núverandi starf KHÍ. Hinar deildirnar eru kennaradeild og íþrótta, tómstunda og þroskaþjálfadeild.Starfsemi hins nýja sviðs mun að mestu fara fram í Stakkahlíð og á Laugavatni enn um sinn en áætlanir eru um að byggja nýtt húsnæði á háskólasvæðinu. Er þar sérstaklega horf til lóðar á horni Suðurgötu og Hjarðarhaga.Samfara þessum breytingum verður uppbyggingu á deildum Háskóla Íslands gjörbreytt þannig að eftir breytingar verða til fimm svið í stað ellefu deilda áður. Yfir hverju sviði fyrir sig mun koma ný staða sem nefnist ,,forseti fræðasviðs" og var auglýst í þessar 5 stöður um seinustu helgi. Deildarforsetar munu þó enn sitja yfir hverri deild innan sviðanna en starf þeirra mun breytast nokkuð vegna hins nýja embættis forseta fræðasviðs.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Fleiri fréttir Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Sjá meira