Framsýn stéttarfélag: Auðmenn axli ábyrgð 15. október 2008 16:25 Húsavík.
Framsýn-stéttarfélag á Húsavík hvetur til samstöðu meðal þjóðarinnar um að takast á við þann mikla efnahagsvanda sem blasir við almenningi á Íslandi. Hrun efnahagslífsins mun koma illa við marga, ekki síst verkafólk, ellilífeyrisþega og öryrkja. Framsýn hefur sérstakar áhyggjur af stöðu þessa fólks á þessum miklu óvissutímum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir ennfremur: „Félagið telur mikilvægt að allir hlutaðeigandi aðilar komi að því að endurreisa íslenskt efnahagslíf sem byggi á jöfnuði og félagshyggju í stað þeirrar miklu misskiptingar sem verið hefur ríkjandi undanfarin ár. Misskiptingu sem nú hefur kallað yfir okkur gjaldþrot heimila, fyrirtækja og bankastofnanna. Ljóst er að styrkja þarf stoðir atvinnulífsins til að forða stórauknu atvinnuleysi á næstu mánuðum og árum. Í því sambandi er mikilvægt að tekið verði á skuldastöðu fyrirtækja og samþykkt verði þegar í stað að auka við fiskveiðikvótann til að skapa aukna atvinnu og þar með gjaldeyri fyrir þjóð í vanda. Þá þarf að hraða framkvæmdum við uppbyggingu álvers á Bakka við Húsavík eins og kostur er þar sem slík aðgerð myndi hjálpa verulega til þess að rétta þjóðarskútuna við á ný. Framsýn telur eðlilegt að þeim mönnum sem bera ábyrgð á því hvernig komið er fyrir íslensku efnahagslífi og hampað hefur verið undanfarin ár af ákveðnum öflum í þjóðfélaginu verði gert að standa fyrir gjörðum sínum. Þeir hafa í gegnum tíðina varið ofurlaun og svimandi háa starfslokasamninga með þeim rökum að þeir bæru svo mikla ábyrgð. Undir þessum áróðri hefur verkafólk með um 100.000 krónur á mánuði orðið að sitja. Nú er hins vegar komið að skuldadögum þar sem eðlilegt hlýtur að teljast að þessir sömu menn axli ábyrgðina í samræmi við launakjör. Þá er það skýlaus krafa Framsýnar að stjórnvöld tryggi lífeyrissparnað almennu lífeyrissjóðanna með sama hætti og lífeyrisjóði opinberra starfsmanna. Í þeim efnahagsþrengingum sem við stöndum frammi fyrir í dag má fastlega búast við að sjóðfélagar almennu lífeyrisjóðanna þurfi að taka á sig skerðingar meðan réttindi sjóðfélaga í opinberu sjóðunum eru varin af ríkinu."
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Knapi datt af baki Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Sjá meira