Verkfalli ljósmæðra í kvöld aflýst í kjölfar miðlunartillögu 16. september 2008 13:44
Verkfalli ljósmæðra sem hefjast átti á miðnætti hefur verið frestað eftir að ríkissáttasemjari lagði fram miðlunartillögu á fundi ljósmæðra og samninganefndar ríkisins fyrr í dag. Fram kemur í tilkynningu ríkissáttasemjara að tillagan verði ekki birt öðrum en þeim sem hlut eiga að máli fyrr en atkvæði hafa verið greidd um hana. Að sögn Guðlaugar Einarsdóttur, formanns Ljósmæðrafélags Íslands, verður tillagan kynnt á félagsfundi í Reykjavík í kvöld og í fyrramálið á Akureyri og greiða ljósmæður þá atkvæði um hana á föstudag með rafrænum hætti. Fjármálaráðherra skilar sínu atkvæði líka á föstudag. „Við náðum ekki saman þannig að ríkissráttasemjari tók af skarið með miðlunartillögu sem ég held að sé hans önnur á hans starfsferli og við munum leggja hana fyrir okkar félagsmenn," sagði Guðlaug. „Ef þetta er samþykkt er málinu lokið," segir Guðlaug og vísar til frekari verkfalla á næstu vikum sem átti að ljúka með allsherjarverkfalli í lok mánaðarins. Aðspurð hvernig henni lítist á miðlunartillöguna segir Guðlaug að forsvarsmenn Ljósmæðrafélagsins muni tala fyrir tillögunni á fundum sínum. Um leið og þessi tillaga var lögð fram var samþykkt að fresta meðferð máls sem fjármálaráðherra hugðist höfða fyrir félagsdómi um lögmæti uppsagna ljósmæðra. Jafnframt að málið falli niður verði miðlunartillagan samþykkt enda hvetji Ljósmæðrafélag Íslands félagsmenn sína til að afturkalla uppsagnirnar.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira