Lægsta útsvarið verður áfram á Seltjarnarnesi 24. desember 2008 12:00 Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi.
Seltjarnarnes verður áfram með lægstu útsvarsprósentuna á nýju ári, þar sem útsvarið verður 1,18 prósentustigum lægra en þar sem það er hæst. Alþingi hefur samþykkt heimild til sveitarfélaganna til að hækka hámarksútsvarið úr 13,03 prósentum í 13,28 prósent, í ljósi þeirra erfiðleika sem blasa við sveitarfélögunum vegna aukinni útgjalda á sama tíma og tekjur þeirra dragast saman. Íbúar Seltjarnarness njóta áfram lægstu skattheimtunnar hjá sínu sveitarfélagi þar sem útsvarið verður óbreytt í 12,10 prósentum. Garðbæingar verða með næst lægsta útsvarið þar sem það verður 12,46 prósent og Reykvíkingar greiða áfram gamla hámarkið, 13,3 prósent. Sveitarfélögin Akureyri, Grundarfjörður, Hafnarfjörður, Ísafjarðarbær og Kópavogur hækka öll útvsarið hjá sér úr gamla hámarkinu í nýja hámarkið eða 13,28 prósent. Í Reykjanesbæ var útsvarið undir hámarki á þessu ári eða 12,7 prósent en þar hækkar útsvarið í nýja hámarkið og nemur hækkunin 0,58 prósentustigum. Mörg sveitarfélög eiga eftir að ákveða útsvarsprósentuna, en reiknað er með að flest sveitarfélög af millistærð og þau sem eru illa sett nýti sér hámarkið, enda er það skilyrði fyrir því að fá úthlutað úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásynd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Sjá meira