Taugaveiklunarbragur á ríkisstjórninni 22. júní 2008 12:15
Húsnæðisaðgerðir ríkisstjórnarinnar eru krampakenndar ákvarðanir til að friðþægja háværa hagsmunaaðila, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslyndra. Hann telur að aðgerðirnar viðhaldi þenslunni og lengi í verðbólgunni. Kristinn tjáir sig um aðgerðirnar í nýjustu færslu á bloggsíðu sinni. Þar segir hann að þegar rýnt sé í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um aðgerðir á fasteigna- og fjármálamarkaði komi mest á óvart hversu erfitt sé að sjá heildstæða efnahagsstefnu út úr þeim. Hann telur að líklegasta afleiðing þessa útspils verði að lengri tíma taki að ná tökum á verðbólgunni með tilheyrandi kostnaði fyrir skuldug heimili. Þá segir Kristinn að taugaveiklunarbragur sé á ríkisstjórninni. Mestu skipti að ná jafnvægi í viðskiptum við útlönd. Með því að dæla fé út í viðskiptabankana muni stjórnvöld hins vegar fjármagna áframhaldandi neyslu, vinna gegn verðlækkun húsnæðis og stuðla að áframhaldandi uppbyggingu húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu. Það viðhaldi þenslu og vinni gegn stöðugleika. Rúsínan í pylsuendanum, segir Kristinn, er ríkisvæðingin á íbúðalánaútrás viðskiptabankanna. Fróðlegt verði að sjá hvort viðskiptabankarnir kyngi þeim beiska bita. Bönkunum hafi mistekist að koma Íbúðalánasjóði fyrir kattarnef og nú muni hann endurfjármagna lán viðskiptabankanna með veði í íbúðarhúsnæði. Kristinn áætlar að sú endurfjármögnun gæti slagað upp í 500 milljarða króna, og ef áætlun ríkisstjórnarinnar gangi eftir verði skyndilega nokkur hundruð milljarða króna í handbæru fé í viðskptabönkunum til ráðstöfunar í almenn útlán án nokkurra skilyrða. Þetta telur Kristinn vísbendingu um að ákvörðun ríkisstjórnarinnar hafi verið tekin í nokkurri taugaveiklun.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira