Segist ekki hafa lagt drög að handtöku Jóns Ásgeirs 9. maí 2008 14:08 MYND/E.Ól
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri segir það rangt sem fram hafi komið í fréttaskýringu DV þann 1. maí að hann hafi lagt drög að Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, yrði handtekinn í framhaldi af húsleit hjá Baugi. Í yfirlýsingu frá ríkislögreglustjóra segir að blaðamaður DV fullyrði í fréttaskýringunni að menn á vegum embættis ríkislögreglustjóra hafi verið sendir á Keflavíkurflugvöll til þess að handtaka Jón Ásgeir Jóhannesson og í kjölfar lögreglunnar hafi verið töku- og fréttamenn frá Ríkissjónvarpinu. Ríkislögreglustjóri bendir á að þegar hafi komið fram í fjölmiðlum að hvorki fréttamenn né tökumenn frá Ríkissjónvarpinu voru á staðnum. Þá hafi ríkislögreglustjóri ekki stýrt aðgerðum vegna rannsóknar Baugsmálsins heldur saksóknari efnahagsbrotadeildar embættisins. Ríkislögreglustjóri segir einnig rangt í skrifum DV að lögreglumenn frá embætti ríkislögreglustjóra hafi farið í Leifsstöð til þess að handtaka Jón Ásgeir Jóhannesson. „Það hefur verið kannað bæði hjá embætti ríkislögreglustjóra og hjá lögreglustjóranum á Keflavíkurflugvelli. Í fréttaskýringunni er sagt að ,,atburðarásin hafi vakið athygli og jafnvel hneykslan tollvarða og löggæslumanna á Keflavíkurflugvelli." Þetta er undarleg fullyrðing í ljósi þess að hvorki lögreglumenn frá embætti ríkislögreglustjóra né fulltrúar Ríkissjónvarpsins voru á staðnum," segir í tilkynningu ríkislögreglustjóra. Fer embættið fram á að DV leiðrétti þessar rangfærslur sem fyrst.
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira