Vonast eftir niðurstöðu vegna Laugavegshúsa síðar í dag 25. janúar 2008 12:08
Borgin gæti þurft að greiða mörg hundruð milljónir fyrir húsin að Laugavegi 4 og 6. Viðræður borgaryfirvalda við núverandi eigendur eru þegar hafnar og vonast er til þess að niðurstöður liggi fyrir seinna í dag. Borgarráð samþykkti í gær að hefja viðræður við eignarhaldsfélagið Kaupang, sem á húsin að Laugavegi 4 og 6, um möguleg kaup á húsunum. Er þetta í samræmi við málefnaskrá hins nýja borgarmeirihluta en markmiðið er að gera húsin upp í upprunalegri mynd. Upphaflega ætluðu eigendur húsanna að láta rífa þau og reisa hótel á staðnum. Fyrrverandi meirihluti vildi bjarga húsunum með því að láta flytja þau, hugsanlega í Hljómskálagarðinn, en það ferli var hins vegar stöðvað þegar húsafriðunarnefnd beindi þeim tilmælum til menntamálaráðherra að húsin yrðu skyndifriðuð. Þau tilmæli eru nú komin á borð ráðherra sem tekur ákvörðun seinna í dag. Jóhannes Sigurðsson hjá Kaupangi, staðfesti í samtali við fréttastofu í morgun að viðræður milli félagsins og borgarinnar um kaup á húsunum væru þegar hafnar. Taldi hann líklegt að niðurstöður myndu liggja fyrir seinna í dag. Hann vildi þó ekki ræða um hugsanlegt kaupverð en sagði ljóst að félagið hefði nú þegar eytt mörg hundruð milljónum króna vegna fyrirhugaðra framkvæmda á lóðinni. Samkvæmt vef Fasteignamats ríkisins er söluverðmæti húsanna metið á um 90 milljónir króna. Fastlega má gera ráð fyrir því að útlagður kostnaður Kaupangs leggist ofan á kaupverðið og gæti heildarkostnaður borgarinnar því numið mörg hundruð milljónum króna. Hafa upphæðir á bilinu 300 til 600 milljónir verið nefndar í þessu samhengi. Er þá ekki talinn með sá kostnaður sem fer í það að gera húsin upp.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Fleiri fréttir Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Sjá meira