Innlent

Framleiðsluvörur seldar fyrir nærri 400 milljarða í fyrra

Heildarverðmæti seldra framleiðsluvara árið 2007 var 396 milljarðar króna sem er aukning um tæpa 40 milljarða króna frá árinu 2006 og 9,3 prósent aukning að raungildi. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Heildarverðmæti seldra framleiðsluvara árið 2007 án fiskvinnslu var 281 milljarður króna en var 242 milljarðar króna árið 2006, sem er aukning um rúma 39 milljarða króna milli ára. Í 13 atvinnugreinum af 17 jókst verðmæti seldra framleiðsluvara.

Hlutdeild einstakra atvinnugreina í söluverðmæti framleiðsluvara er nokkuð stöðug milli áranna 2006-2007 fyrir utan mikla aukningu í framleiðslu málma. Hlutdeild matvæla- og drykkjarvöruiðnaðar er mest, með rúm 47 prósent af heildarverðmæti árið 2007, þar af rúm 29 prósent vegna fiskvinnslu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×