Íslendingur mátti svara niðrandi orðum Þjóðverja 22. október 2008 11:23
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá dómi kröfu Þjóðverja um að ummæli Íslendings í tölvubréfi til fólks sem þeir þekkja yrðu dæmd dauð og ómerk. Mennirnir tveir eru stjórnarmenn í Evrópusamtökum fatlaðra golfáhugamanna og sendi sá þýski tölvupóst sumarið 2006 til annars manns í samtökunum þar sem varað var við tveimur nýjum stjórnarmönnum í samtökunum. Við þessu brást Íslendingurinn og sendi tölvupóst til nokkurra aðila þar sem meðal annars kom fram að Þjóðverjinn hefði verið dæmdur fyrir að sitja um fólk og að hann ætti við mikil andleg veikindi að stríða. Vegna þessara orða stefndi sá þýski Íslendingnum og vildi að orð hans yrðu dæmd dauð og ómerk. Enn fremur að Íslendingurinn yrði dæmdur til þyngstu refsingar og að til að greiða hálfa milljón í miskabætur vegna ærumeiðinga. Refsikröfu Þjóðverjans var vísað frá vegna þess að hann höfðaði ekki málið innan tilskilins tíma. Þá vísaði Héraðsdómur Reykjavíkur í dóm Landsréttar í Würzburg í Þýskalandi þar sem ráða mætti að sá þýski hefði átt við sálræn veikindi að stríða. Í hinu íslenska máli lægju hins vegar engin göfn fyrir um andlegt heilsufar hans. Íslendingurinn hefði ekki fært sönnur fyrri fullyrðingum sínum. Hins vegar sagði dómurinn að líta yrði á ummælin í samhengi. Tölvupóstur Íslendingsins hefði verið svar við tölvupósti Þjóðverjans um tvo nýja stjórnarmenn í Evrópusamtökum fatlaðra golfáhugamanna en þau hefðu verið sérlega meiðandi. Þjóðverjanum hefði tæplega getað dulist að við svo óvægnum og harkalegum árásum á persónur þeirra sem í hlut áttu kynni að verða brugðist af einhverjum þeirra sem fengu tölvupóst hans í hendur. Íslendingurinn hefði sagst ekki hafa átt annarra kosta völ en að svara ásökunum Þjóðverjans í garð tvímenninganna. Taldi dómurinn því út frá íslenskum lögum að réttmætt tilefni hefði verið til orða Íslendingsins en þau hefðu ekki falið í sér þyngri dóm um Þjóðverjann en hann mátti vænta sem andsvars við tölvupósti sínum.
Mest lesið Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Innlent Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Innlent Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Innlent Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Erlent Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Innlent Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Innlent Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Erlent Fleiri fréttir Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Var ekki að láta undan þrýstingi Grindvíkinga Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Kannast við tannstönglatrixið: „Nágrannavarsla er albesta vörnin“ Kjósendur stjórnarflokkanna „bitrir“ og í basli með sjálfsmyndina Búast við gosmóðu fyrir norðan og vestan næstu daga Sinnaskipti lögreglustjórans og Þorgerður ræðir væntanlegan varnarsamning við ESB Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Tíðindalítil nótt á gosstöðvunum „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Grindavík opin fyrir almenning á nýjan leik Ferðamenn streyma í Hrísey alla daga vikunnar Tilkynnt um þjófnað í fjórum verslunum Sjá meira