Tveir Albanar á Íslandi grunaðir um að hafa verið í Frelsisher Kósóvó 22. október 2008 16:49 Mennirnir dvöldu meðal annars´í húsakynnum hælisleitenda í Reykjanesbæ. MYND/Víkurfréttir
Tveir Kósóvó-Albanar sem lögregla grunar að hafi verið í Frelsisher Kósóvó sóttust eftir hæli hér á landi. Þriðji Albaninn var einnig til rannsóknar vegna tengsla við þá. Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhald yfir tveimur mannanna en það átti að renna út í dag. Fram kemur í úrskurði Hæstaréttar að mennirnir hafi komið til landsins fyrr í mánuðinum, hver í sínu lagi, og allir óskað eftir hæli. Við nánari eftirgrennslan lögreglu komst hún að því að tveir mannanna hefðu lagt af stað frá Þessalóníku í Grikkalndi til Íslands á svipuðum tíma en komið misjafna leið. Þeir komu til landsins 10. og 11. október. Sá fyrsti kom hins vegar 4. október. Með því að leita í fórum eins mannanna fann lögregla myndir í síma sem sýndu þá saman hér á landi og jafnframt myndir af tveimur þeirra þungvopnuðum í útlöndum. Vaknaði þá grunur um að þeir tengdust Frelsisher Kósóvó. Taldi lögreglan með vísan til greinargerðar greiningardeildar Ríkislögreglustjóra um Frelsisher Kósóvó að tveir mannanna kynnu að vera hættulegir og fór fram á gæsluvarðhald yfir þeim á meðan á rannsókn málsins stæði yfir. Samkvæmt upplýsingum Vísis á að fylgja tveimur mannanna úr landi á morgun en einn þeirra var dæmdur í mánaðarfangelsi fyrir að framvísa vegabréfi annars manns.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira