Segir pólitíska sérhagsmuni Browns ráða ferðinni sev skrifar 22. október 2008 15:53 „
Okkur blöskraði þessi klaufaháttur að koma sjónarmiðum Íslendinga í fjölmiðla," segir Ólafur Elíasson, tónlistamaður og einn aðstandenda síðunnar indefence.is. Hann segist gáttaður á því að Gordon Brown hafi komist upp með það ótrúlega „spin" að beita hryðjuverkalögum gegn íslenskum bönkum. Gjörningur sem hafi verið til þess eins að bjarga hans pólitíska skinni. Á síðunni er að finna undirskriftalista og ávarp til bresku þjóðarinnar, þar sem málstaður Íslendinga er tíundaður. „Það var klúður að takast ekki á við þessa hönnuðu atburðarrás sem Gordon og Darling settu af stað," segir Ólafur og bætir við að vegna þess hve lítið heyrðist frá stjórnvöldum gangi breskur almenningur með þá hugmynd að við skömmumst okkar. Forvígismenn undirskriftasöfnunarinnar hafa flestir búið og starfað í Bretlandi. „Við sem þekkjum Breta vitum að þeim myndi líða mjög illa ef heimurinn sæi þá sem „bullies"," segir Ólafur, sem vonar að viðhorf bresks almennings breytist þegar hann áttar sig á því að forsætisráðherra þeirra hefur í eigingjörnum tilgangi pínt litla vinaþjóð. Og hópurinn ber engan kala til hins almenna Breta. „ Við elskum Bretland. Við höfum átt yndislegar stundir í Bretlandi og eigum mikið af yndislegum breskum vinum," segir Ólafur. „Að láta pólitíska sérhagsmuni Gordons Browns eyðileggja samband okkar Breta kemur ekki til greina." Við síðustu athugun höfðu tæplega tíu þúsund manns skráð sig á undirskriftalistann. Ólafur segir markmiðið vera að ná helmingi þjóðarinnar á listann, og koma málinu í heimspressuna. Fyrirhugað er svo að afhenda breskum stjórnvöldum yfirlýsinguna og undirskriftalistann í viðurvist fjölmiðla til að vekja athygli á málstað Íslendinga.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira