Conscriptor ritar sjúkraskrár sem boðnar voru út 15. febrúar 2008 14:46 Úr myndasafni. MYND/GVA
Eignarhaldsfélagið Conscriptor átti lægsta tilboð í ritun sjúkraskráa fyrir slysa- og bráðasvið Landspítalans sem boðin var út nýverið. Fram kemur í tilkynningu á vef spítalans að ákveðið hafi verið að ganga til samninga við fyrirtækið en það hefur reynslu af ritun sjúkraskráa í Svíþjóð. Fyrirtækið uppfyllir að öðru leyti þau skilyrði um öryggi og aðgangstakmarkanir sem spítalinn setti fram. Útboðið er nýlunda á vegum spítalans og er um að ræða tilraunaverkefni til hálfs árs. Verður fyrirtækinu falið að rita um 5.500 hljóðritanir mánaðarlega og er miðað við að ekki líði meira en 24 tímar frá innlestri upplýsinga lækna til ritunar í sjúkraskrá nema um helgar en þá skal ritað innan 36 tíma. Takist tilraunin vel er gert ráð fyrir að verktaki vinni áfram í 6 mánuði og þá fari fram formlegt útboð verkefnisins. Verkefnið hefst 1. maí næstkomandi og fær því Conscriptor tvo og hálfan mánuð til þess að undirbúa verkefnið. Einnig rætt við Heilbrigðsstofnun Siglufjarðar Forsvarsmenn Landspítalans ákváðu jafnframt að eiga viðræður við Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar, sem átti næstbesta tilboð, um önnur möguleg skráningarverkefni. Alls bárust tilboð í verkið frá tíu fyrirtækjum og voru sum með meira en einni útfærslu. Verðtilboð námu á bilinu 422 - 1.475 krónum án virðisaukaskatts.Bent er á að strangar kröfur séu um öryggi upplýsinga. Starfsmenn viðsemjanda þurfa að undirrita þagnareið á sama hátt og starfsmenn Landspítala og nota verður tölvubúnað sem viðurkenndur er af upplýsingatæknisviði spítalans. Ekki er heimilt að veita öðrum aðgang að upplýsingunum en þeim sem til þess hafa persónulega heimild og krafist er að ábyrgðarmaður verkefnisins sé löggiltur læknaritari. Ríkt verður gengið eftir þessum skilyrðum að sögn Landspítalans.
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Fleiri fréttir Leita enn að meintum geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Sjá meira