Innlent

Conscriptor ritar sjúkraskrár sem boðnar voru út

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. MYND/GVA

Eignarhaldsfélagið Conscriptor átti lægsta tilboð í ritun sjúkraskráa fyrir slysa- og bráðasvið Landspítalans sem boðin var út nýverið. Fram kemur í tilkynningu á vef spítalans að ákveðið hafi verið að ganga til samninga við fyrirtækið en það hefur reynslu af ritun sjúkraskráa í Svíþjóð. Fyrirtækið uppfyllir að öðru leyti þau skilyrði um öryggi og aðgangstakmarkanir sem spítalinn setti fram.

Útboðið er nýlunda á vegum spítalans og er um að ræða tilraunaverkefni til hálfs árs. Verður fyrirtækinu falið að rita um 5.500 hljóðritanir mánaðarlega og er miðað við að ekki líði meira en 24 tímar frá innlestri upplýsinga lækna til ritunar í sjúkraskrá nema um helgar en þá skal ritað innan 36 tíma. Takist tilraunin vel er gert ráð fyrir að verktaki vinni áfram í 6 mánuði og þá fari fram formlegt útboð verkefnisins. Verkefnið hefst 1. maí næstkomandi og fær því Conscriptor tvo og hálfan mánuð til þess að undirbúa verkefnið.

Einnig rætt við Heilbrigðsstofnun Siglufjarðar

Forsvarsmenn Landspítalans ákváðu jafnframt að eiga viðræður við Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar, sem átti næstbesta tilboð, um önnur möguleg skráningarverkefni. Alls bárust tilboð í verkið frá tíu fyrirtækjum og voru sum með meira en einni útfærslu. Verðtilboð námu á bilinu 422 - 1.475 krónum án virðisaukaskatts.

Bent er á að strangar kröfur séu um öryggi upplýsinga. Starfsmenn viðsemjanda þurfa að undirrita þagnareið á sama hátt og starfsmenn Landspítala og nota verður tölvubúnað sem viðurkenndur er af upplýsingatæknisviði spítalans. Ekki er heimilt að veita öðrum aðgang að upplýsingunum en þeim sem til þess hafa persónulega heimild og krafist er að ábyrgðarmaður verkefnisins sé löggiltur læknaritari. Ríkt verður gengið eftir þessum skilyrðum að sögn Landspítalans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×