Verðbólgan nærri 16 prósent 27. október 2008 09:00
Verðbólga í október reyndist 15,9 prósent og jókst um 1,9 prósentustig frá septembermánuði. Þetta sýna nýjar tölur Hagstofunnar sem í dag birti vísitölu neysluverðs fyrir október. Hún hafði hækkað um 2,16 prósent á milli mánaða. Spár greiningardeilda Glitnis og Kaupþings gerðu ráð fyrir 15,8 og 15,7 prósenta verðbólgu. Það sem knýr áfram verðbólguna nú er hækkun á mat og drykkjarvöru um 4,3 prósent og og verðhækkun á fötum og skóm um tæp fimm prósent. Verð á húsgögnum, heimilistækjum, heimilisbúnaði o.fl. hækkaði um 7,1 prósent, á varahlutum og hjólbörðum um nærri fimmtung, á flugfargjöldum til útlanda um nærri 19 prósent og verð á sjónvörpum, dvd-spilurum, tölvum o.fl. hækkaði um rúm tíu prósent. Verð á bensíni og díselolíu lækkaði hins vegar um 3,4 prósent og þá lækkaði kostnaður vegna eigin húsnæðis um 1,3 prósent. Þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,24 prósent en áhrif af hækkun raunvaxta voru 0,03 prósent. ,,Nýskráningar bifreiða hafa nánast stöðvast af efnahagsástæðum. Í ljósi þessa er ekki tekið tillit til breytinga á listaverði bíla frá september, en það hefði hækkað bifreiðalið vísitölunnar um 4,1% (áhrif 0,30%)," segir í frétt Hagstofunnar. Sem fyrr segir er verðbólgan 15,9 prósent á ársgrundvelli og 17,8 prósent ef ekki er tekið tillit til húsnæðisþáttarins.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Sjá meira