Innlent

Mynda starfshóp til að fylgjast með ástandinu á Íslandi

Frederik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Geir H. Haarde.
Frederik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Geir H. Haarde. MYND/Anton

Norrænu forsætisráðherrarnir hafa ákveðið að mynda starfshóp sem ætlað er að fylgjast með hverjar þarfir Íslendinga verði eftir að hafa fengið lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þetta kom fram á blaðamannafundi ráðherranna í dag eftir fund þeirra í Helsinki.

Fram hefur komið að Geir H. Haarde forsætisráðherra hafi formlega óskað eftir aðstoð norrænu ríkjanna í þeirri kreppu sem ríkir á Íslandi og sagði Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, norrænu ríkin reiðubúin að aðstoða Íslendinga. Hins vegar lægi ekki fyrir hversu mikla fjármuni norrænu ríkin myndu leggja til.

Annar fundur er fyrirhugaður á morgun hjá ráðherrunum þar sem ræða á hlutverk starfshópsins og hugsanlega lánsfjárhæð.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×