Innlent

Skuldabyrði almennings snarhækkar

Skuldabyrðar almennings vegna bankahrunsins og ástandsins hafa snarhækkað um 30 milljarða á einum mánuði. Sá sem tók hámarkslán Íbúðalánasjóðs fyrir fjórum vikum horfir nú fram á nærri hálfa milljón bætast ofan á höfuðstólinn. Á meðan lánin hækka skipar félagsmálaráðherra sérfræðingahóp.

Sá þrýstingur verður æ háværari á stjórnvöld að koma í veg fyrir að lán almennings hækki hér upp úr öllu valdi. Borgarafundur verður í Iðnó í kvöld, vefsíður spretta upp, fésbókargrúppur verða til.

Nýjar verðbólgutölur birtust í morgun - og nú stendur verðbólgan í 15,9 prósentum.

Þetta hefur bein áhrif á höfuðstól okkar verðtryggðu lána. Heimilin í landinu skulda nú um 1400 milljarða króna í verðtryggðum lánum. Það þýðir að heimilin skulda að jafnaði tæplega 10,3 milljónir króna í verðtryggðum lánum, ofan á þær milljónir bættust við 230 þúsund krónur á einum mánuði.

En tökum nærtækara dæmi. Hjón sem tóku 20 milljónir króna að láni fyrir sléttu ári - og hafa borgað af því skilvíslega - hafa nú, 12 mánuðum síðar, hreint ekki lækkað höfuðstólin með svokölluðum afborgunum, heldur þvert á móti hækkað hann um 3 milljónir króna.

Hefðu hjónin tekið lánið í september nú rétt fyrir hrun bankanna, á meðan flest lék í lyndi á Íslandi, þá hefði það á einum mánuði hækkað um nærri hálfa milljón íslenskra króna (470 þúsund krónur). Þessi hækkun mun skila sér inn á greiðsluseðil manna í desember.

Þessi hálfa milljón fer hvergi, fyrr en lánið er uppgreitt, einhvern tímann á ævikveldinu. En það var fyrst í dag sem félagsmálaráðherra skipaði starfshóp til að bregðast við vanda lántakenda vegna verðtryggingar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×