Stærsti fíkniefnafundur í sögu Sauðárkróks 21. september 2008 17:21
Umtalsvert magn fíkniefna fannst á Sauðárkróki aðfaranótt laugardags. Lögregla vill ekki gefa upp hve mikið magnið er eða af hvaða tegund en um fleiri en eina tegund mun vera að ræða. Það er fréttamiðillinn Feykir í Skagafirði sem segir frá þessu en málið var unnið í samvinnu lögreglunnar á Sauðarkróki og fíkniefnateymis lögreglunnar á Norðurlandi. Feykir greinir einnig frá því að kona sem býr í húsinu hafi verið handtekin og úrskurðuð í gæsluvarðhald fram til 25.september. Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki segir í samtali við Feyki að þetta sé mesta magn fíkniefna sem lögreglan á Sauðárkróki hefur gert upptækt í einni aðgerð. Hann segir einnig ljóst að samstarf lögregluembætta á Norðurlandi í fíkniefnamálum hafi sannað ágæti sitt og að lögreglan sé mun betur í stakk búin til þess að takast á við mál af þessu tagi. Húsleitin mun hafa verið gerð í kjölfar húsleitarheimildar frá Héraðsdómi Norðurlands vestra en áður hafði undirbúningur og rannsókn málsins staðið yfir í nokkurn tíma. „Í framhaldi aðgerða lögreglu á Sauðárkrók var farið í húsleit á höfuðborgarsvæðinu þar sem einnig fundust fíkniefni ásamt vopnum," segir einnig á Feyki.
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira