Útgjöld til heilbrigðismála þrefaldast á aldarfjórðungi 2. apríl 2008 09:06 MYND/Hari
Heildarútgjöld til heilbrigðismála hafa vaxið verulega síðasta aldarfjórðung eða úr ríflega 6,4 prósentum af landsframleiðslu í upphafi níunda áratugarins í um 9,2 prósent af landsframleiðslu á síðasta ári. Fram kemur á vef Hagstofunnar að þetta samsvari til rúmlega 117 milljarða króna á verðlagi síðasta árs. Árið 1980 voru útgjöld til heilbrigðismála um 41 milljarðar á verðlagi síðasta árs þannig að heilbrigðisþjónustan hefur nær þrefaldast að magni á þessu tímabili. Heilbrigðisútgjöld á mann voru hins vegar um 377 þúsund krónur árið 2007 en 179 þúsund krónur í byrjun níunda áratugarins á verðlagi 2007 og hafa því ríflega tvöfaldast. Hlutur heimilanna hefur aukist verulega Eftir þessum mælikvarða reyndust útgjöldin hæst árið 2003 eða 10,4 prósent af landsframleiðslu. Af heildarútgjöldum til heilbrigðismála greiðir hið opinbera 96,8 milljarða króna og einkaaðilar 20,5 milljarða. Tölur Hagstofunnar sýna einnig að á rúmlega aldarfjórðungi hafa útgjöld hins opinbera til þessa málaflokks aukist úr 5,5 prósentum af landsframleiðslu í 7,6 prósent. Á sama tíma hafa útgjöld heimilanna til heilbrigðisþjónustu tvöfaldast, úr 0,8 prósentum af landsframleiðslu í 1,6 prósent. Hlutur heimilanna hefur aukist verulega frá 1980 eða úr 12,8 prósentum af heildarútgjöldum í 17,5 prósent árið 2007. Hámarki náði hlutur þeirra árið 1998 er hann nam tæplega fimmtungi af heildarútgjöldum til heilbrigðismála. Ísland í 10-11. sæti meðal OECD-ríkja Heildarútgjöld til heilbrigðismála í ríkjum OECD voru að meðaltali níu prósent af vergri landsframleiðslu ríkjanna árið 2005 en mikill munur er á því hlutfalli milli einstakra ríkja. Hér á landi voru heildarútgjöld til heilbrigðismála 9,5 prósent af vergri landsframleiðslu þetta ár en Norðmenn, Svíar og Danir vörðu hins vegar 9,1 prósent af vergri landsframleiðslu til heilbrigðismála árið 2005 en Frakkar aftur á móti 11 prósentum. Á þennan mælikvarða voru Íslendingar í 10.-11. sæti OECD-ríkjanna.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira