FÍS sendir viðskiptaráðherra tóninn 30. apríl 2008 09:50 MYND/GVA
Félag íslenskra stórkaupmanna sendir Björgvini G. Sigurðsssyni viðskiptaráðherra tóninn í tilkynningu í kjölfar átaks ráðuneytisins vegna hækkunar verðlags. Þar gagnrýnir félagið þá ákvörðun stjórnvalda að fela hagdeild ASÍ að standa að sérstöku átaki í verðlagseftirliti. Það sé ekki til þess fallið að skapa traust því bæði formaður og hagfræðingur ASÍ hafi látið hafa það eftir sér að fyrirtæki í verslun hafi hækkað vöruverð langt umfram þörf án þess að hafa þurft að rökstyðja þær fullyrðingar. Spyr FÍS hvort líklegt sé að samtök þar sem forsvarsmenn hafi svo fyrirframmótaðar skoðanir á þessum málum geti gert hlutlaustar verðkannanir. Félagið segir þó að mesta furðu veki orð viðskiptaráðherra sem vilji að fyrirtæki fresti hækkunum og lækki jafnvel verð. „Ætlast viðskiptaráðherra virkilega til þess að verslunin í landinu taki á sig afleiðingar gengisbreytinga undangenginna vikna upp á tugi prósenta, afleiðingar erlendra hráefnishækkana upp á tugi prósenta og afleiðingar innlendra kostnaðarhækkana, einnig upp á tugi prósenta? Er ráðherrann að fara fram á það við fyrirtækin að þau jafnvel stundi undirverðlagningu á vöru og þjónustu? Er ráðherrann að ætlast til þess fyrirtækin hagi rekstri sínum þannig að hann sigli í kaf?" spyr Félag íslenskra stórkaupmanna. Stjórnvöld líti í eigin barm Þau spyrja enn fremur hvort stjórnvöldum væri ekki nær að líta í eigin barm til aðgerða sem séu í þeirra valdi. Lánsfjárskorturinn í landinu sé á góðri leið með að stöðva allar framkvæmdir og gengis- og gjaldmiðilsmálin verði að leysa. Þá vill félagði að stjórnvöld lækki eða afnemi álögur á innfluttar búvörur og stemmi stigu við því vaxtaokri sem fyrirtæki og einstaklingar búa við. Þetta séu aðgerðir sem stjórnvöld hafi í hendi sér að grípa til og myndu strax hafa jákvæð áhrif. „Það er erfitt fyrir eina atvinnugrein að sitja undir þeim stöðuga áróðri sem verslunin hefur mátt þola að undanförnu. Það er vandasamt að bera hönd yfir höfuð sér þegar áróðurinn er svo gengdarlaus sem raun ber vitni, segir einnig í tilkynningunni. Fyrirtæki innan FÍS finni til fullrar ábyrgðar og ætli sér alls ekki að maka krókinn á því ástandi sem nú ríkir í gengis- og verðlagsmálum. Fyrirtækin geri hins vegar kröfu til þess að njóta sammælis í opinberri umræðu.
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira