Innlent

Vísar ásökunum um bull á bug

Elías Guðmundsson, framkæmdastjóri Hvíldarkletts.
Elías Guðmundsson, framkæmdastjóri Hvíldarkletts.

Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri sjóstangveiðifyrirtækisins Hvíldarkletts, segir það víst rétt fyrirtæki hans hafi aðeins keypt 1300 kíló á leigukvótamarkaði eftir að verðið fór í 260 krónur, eins og haft er eftir honum í Fréttablaðinu í dag. Hallgrímur Guðmundsson, formaður Framtíðar, samtaka sjálfstæðra í sjávarútvegi, sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að Elías færi með rangt mál.

„Það er Hallgrímur sem ekki er að fara með rétt mál," segir Elías í samtali við Vísi. „Það er vissulega rétt hjá honum að við höfum leigt meiri kvóta en þessi 1300 kíló en það var áður en verðið náði þeim hæðum sem þekkjast í dag," segir hann. Hann segir erfitt að slá á hvað meðalverð á leigðum kvóta hafi verið hjá Hvíldarkletti enda hafi verðið farið stighækkandi síðustu misseri.

Elías bendir einnig á að verð sem fæst fyrir fisk veiddan á sjóstöng er 35 prósent lægra en það verð sem fæst fyrir fisk veiddan á handfæri, samkvæmt reiknistofu fiskmarkaða fyrir árið 2007þ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×